Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 365

18. nóvember 2013, kl. 16:30 til 20:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 144 liður 8

    Fundargerðir bæjaráðs nr. 364 og 365 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Eiður Ragnarsson og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 365 frá 18.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði

    Mál 1104080 Allur ferill málsins

    Þorsteinn Bergsson og Þröstur Ólafsson frá Minjavernd, Pétur Sörensson forstöðumaður Safnastofnunar og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir formaður atvinnu- og menningarnefndar sátu þennan lið fundarins. Farið var yfir stöðu uppbyggingar safns um Fransmenn á Íslandi. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

  2. 2. Drög að fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga árið 2014

    Mál 1310232 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga verður haldinn 21.nóvember kl. 14:00 í Gistihúsinu á Egilsstöðum. Sigrún Júlía Geirsdóttir verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundinum. Framlögð drög að fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga árið 2014 gera ráð fyrir hækkun á framlagi Fjarðabyggðar um 350.000 kr. eða um 8,2 % Atvinnu- og menningarnefnd vísaði hækkun á framlagi til Héraðsskjalasafns til afgreiðslu í bæjarráði þar sem umbeðin hækkun er töluvert umfram almenna hækkun á fjárhagsrömmum ársins. Bæjarráð samþykkir að hækka framlag til safnsins og vísar málinu til fjárhagsáætlunar 2014.

  3. 3. Safnahús á Egilsstöðum

    Mál 1212033 Allur ferill málsins

    Erindi Fljótsdalshéraðs frá 12.nóvember er varðar mögulega yfirtöku Fljótsdalshéraðs á eignarhaldi Safnahússins á Egilsstöðum. Minnisblað fjármálastjóra og forstöðumanns safnastofnunar og forstöðumanns stjórnsýslu frá 15.nóvember. Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Fljótsdalshéraðs um að eignarhald Safnahúss verði á hendi Fljótsdalshéraðs í framtíðinni, en telur mikilvægt að gert verði skýrt samkomulag þar sem fram komi með hvaða hætti Fljótsdalshérað ráðist í endurbætur á húsinu og jafnframt að þær endurbætur verði með samþykki allra hlutaðeigandi aðila í húsinu. Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu og fjármálastjóra að vinna áfram að málinu í samvinnu við bæjaryfirvöld á Fljótsdalshéraði og leggja endanlega útfærslu á samkomulagi fyrir bæjarráð.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1307059 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga fjármálastjóra um breytingar á fjárhagsáætlun 2014 fyrir seinni umræðu í bæjarstjórn.

    Bókun: Undirrituð samþykkir ekki tillögur um skerðingar í félagsþjónustu og fræðslu- og frístundamálum í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2014. Einnig tekur undirrituð undir bókun fræðslu- og frístundanefndar frá 13.nóvember þar sem nefndin telur útilokað að hagræða meira í fræðslu- og frístundastofnunum og þolmörkum sé nú þegar náð.

    Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra frá 14.nóvember 2013 sem hér segir:

    Bæjarráð samþykkir samhljóða lið 1.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða lið 2, að undanskyldum liðum a. og b. sem samþykktir eru með tveimur atkvæðum.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða lið 3.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða lið 4.a.

  5. 5. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Félagsmálanefnd

    Mál 1208105 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra frá 6.nóvember um viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2013 sem félagsmálanefnd vísaði til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði. Fjármálastjóra falið að vinna viðauka og leggja fyrir fund bæjarstjórnar nk. fimmtudag.

  6. 6. Endurskoðun á umferðarsamþykkt

    Mál 1009017 Allur ferill málsins

    Framlagðar breytingatillögur á samþykkt um umferð í Fjarðabyggð sem gerðar voru á 79. fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

    Bæjarráð fer fram á við eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að nefndin yfirfari samþykktina að nýju og fái yfirlögregluþjón hjá Sýslumannsembættinu á Eskifirði til að koma á fund nefndarinnar. Óskað er eftir að embætti sýslumanns veiti umsögn og skili nefndinni minnisblaði.

  7. 7. Gjaldskrár í fræðslu-og frístundastofnunum

    Mál 1310094 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa þar sem kynntar eru tvær breytingar á gjaldskrám íþróttamiðstöðva. Annars vegar er bætt við 10 miða korti í líkamsrækt og sund og hins vegar að eldri borgarar í Fjarðabyggð fái aðgangskort í sundlaugar Fjarðabyggðar að gjöf og samhliða verði fellt úr gjaldskrá, að 67 ára og eldri fái frítt í sund. Fræðslu- og frístundanefnd hefur samþykkt breytingarnar. Bæjarráð samþykkir ofangreindar breytingar.

    Þá samþykkir bæjarráð að breyta ákvörðunum um gjaldskrárhækkanir frá fundi 19.október þannig að gjaldskrá skóladagheimila hækki um 3 % í stað 8% og gjaldskrá tónlistarskóla hækki um 10% í stað 14%

  8. 8. Hugmyndir um samstarf/sameiningu leik- og grunnskóla á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði

    Mál 1305028 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að samstarf grunn- og leikskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar verði aukið og leitað verði leiða til einföldunar á stjórn skólanna.

  9. 9. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1110202 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir afstöðu, fyrir 23. nóvember nk., um hvort Fjarðabyggð hafi hug á að vera áfram aðili að Atvinnuþróunarsjóði Austurlands. Bæjarráð vísar til bókunar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar frá 13.desember 2012 þar sem bæjarstjórn telur að auka þurfi sveigjanleika í samþykktum Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands þannig að hann geti tekist á við ný verkefni á svæðinu. Í 7.grein draga, að nýjum samþykktum, er stjórn atvinnuþróunarsjóðs heimilt að taka úr sjóðnum árlega sem nemur allt að heildarframlagi ársins, í tiltekin verkefni eða starfsemi, m.a. á sviði þróunar og markaðsmála á sviði SSA. Bæjarráð Fjarðabyggðar er tilbúið að vera aðili að sjóðnum ef árlegt heildarframlag til sjóðsins á árinu 2014, auk þeirra peninga sem fyrir eru í sjóðnum, fari til uppbyggingar og eflingar á starfsemi flugvallarins á Egilsstöðum, m.a. með það að markmiði að koma á reglulegu millilandaflugi.

  10. 10. Krafa vegna hönnunarvinnu hjúkrunarheimilisins í Fjarðabyggð

    Mál 1311063 Allur ferill málsins

    Bréf ríkislögmanns frá 7.nóvember og minnisblað fjármálastjóra frá 13.nóvember er varðar greiðslu á lögfræðikostnaði vegna dóms hæstaréttar er varðar hönnunarsamkeppni um nýtt hjúkrunarheimili á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra til lúkningar málsins.

  11. 11. Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju

    Mál 1309027 Allur ferill málsins

    Drög að verksamningi um "Norðfjarðarhöfn - lenging stálþils" sem samþykktur var á 124. fundi hafnarstjórnar þann 5. nóvember og vísað til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð staðfestir verksamninginn.

  12. 12. Framlenging samnings um ljósritun á höfundaréttarvörðu efni

    Mál 1311057 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu vegna beiðni um framlengingu á samningi við Fjölís. Bæjarráð samþykkir að samningur við Fjölís um ljósritun á höfundaréttarvörðu efni verði framlengdur til 31.desember 2014.

  13. 13. 14.mál til umsagnar - hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum

    Mál 1311055 Allur ferill málsins

    Beiðni um umsögn um tillögu til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum. Bæjarráð ítrekar þá skoðun sína að ef sveitarfélög eigi að fá hlutdeild í veiðileyfagjöldum þá eigi þau sveitarfélög þar sem gjaldheimtan á sér stað, að fá rétt hlutfall af gjaldinu til baka. Sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð borga 2,2 milljarða á ári í veiðileyfgjöld og þannig renni 220 milljónir til Fjarðabyggðar ef 10% renna til sveitarfélaganna. Lagt fram til kynningar.

  14. 14. Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2013

    Mál 1303098 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar og aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands frá 11.nóvember 2013 og samþykkt fjárhagsáætlun 2014. Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.

  15. 15. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - útsvarsálagning

    Mál 1310174 Allur ferill málsins

    Tekin til umfjöllunar útsvarsálagningu fyrir árið 2014. Bæjarráð samþykkir að útsvarshlutfall ársins 2014 verði 14,48 % af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Með þessu er útsvarsheimild sveitarfélagsins fullnýtt 2014. Bæjarráð vísar staðfestingu á útsvarsprósentu til bæjarstjórnar.

  16. 16. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld

    Mál 1310175 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga um álagningarstofna fasteignagjalda 2014 og reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.

    Fasteignagjöld ársins 2014 verði sem hér segir:

    Fasteignaskattur A verði 0,45 % af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur B verði 1,32 % af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur C verði 1,55 % af húsmati og lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,53 % af lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 2,00% af lóðarhlutamati.

    Vatnsgjald verði 0,31 % af húsmati.

    Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.

    Sorphreinsunargjald verði 21.700 kr. á heimili.

    Sorpeyðingargjald verði 10.300 kr.á heimili.

    Fjöldi gjalddaga verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.

    Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Jafnframt er lagt til að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:

    a)Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 53.541 á árinu 2014.

    b)Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2013 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2014 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:.

    Einstaklingar:

    Brúttótekjur allt að kr. 2.579.465 - 100 % afsláttur

    Brúttótekjur yfir 3.411.282 - 0 % afsláttur

    Hjón og samskattað sambýlisfólk:

    Brúttótekjur allt að kr. 3.917.878 - 100 % afsláttur

    Brúttótekjur yfir 4.682.550 - 0 % afsláttur

    Bæjarráð samþykkir tillögu og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

  17. 17. Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-2014

    Mál 1203050 Allur ferill málsins

    Guðrún Jónsdóttir tekur sæti Guðrúnar Veigu Guðmundsdóttur sem varamaður í fræðslu- og frístundanefnd fyrir Fjarðalistann.

  18. 18. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 48 frá 12. nóvember 2013 lögð fram til kynningar.

  19. 19. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 79

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 79 frá 11.nóvember 2013 lögð fram til kynningar.

  20. 20. Atvinnu- og menningarnefnd - 51

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 51 frá 13.nóvember 2013 lögð fram til kynningar.

  21. 21. Fræðslu- og frístundanefnd - 46

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 46 frá 13.nóvember 2013 lögð fram til kynningar.