Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - útsvarsálagning
Mál 1310174 Fyrst á dagskrá 18. nóvember 2013, síðast 21. nóvember 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 365 liður 15
Tekin til umfjöllunar útsvarsálagningu fyrir árið 2014. Bæjarráð samþykkir að útsvarshlutfall ársins 2014 verði 14,48 % af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Með þessu er útsvarsheimild sveitarfélagsins fullnýtt 2014. Bæjarráð vísar staðfestingu á útsvarsprósentu til bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 3
Forseti bæjarstjórnar bar fram tillögu að útsvarsálagningu 2014.
Til máls tók Jens Garðar Helgason.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að útsvarshlutfall ársins 2014 verði 14,48% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Með þessu er útsvarsheimild sveitarfélagsins fullnýtt 2014.
-
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 8.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 365“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.