Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 144

21. nóvember 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson, varamaður
  • Stefán Már Guðmundsson, varamaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1307059 Allur ferill málsins

    Seinni umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 ásamt starfsáætlunum einstakra málaflokka.

    Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2014 og starfsáætlanir stofnana.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson og Jens Garðar Helgason.

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans geta ekki samþykkt fjárhagsáætlun 2014. Helsta ástæða þess er sú að ekki er gert ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Bæjarfulltrúum Fjarðalistans hefur ekki orðið ágengt í því að fá færslu vegarins inn á áætlanir þrátt fyrir að hafa ítrekað afstöðu sína í þessu máli. Að öðru leyti vísum við til bókana í bæjarstjórn (m.a. á fundum nr.123 og nr.142), bæjarráði (m.a. nr.365) og eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd (m.a. nr. 80) og málflutnings okkar í umræðum í bæjarstjórn. Við bæjarfulltrúar Fjarðalistans, viljum taka á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins af ábyrgð og raunsæi og heilt yfir er það gert í þessum áætlunum en í ljósi framangreinds getum við ekki samþykkt þessar áætlanir og sitjum því hjá við afgreiðsu þeirra.

    Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2014 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi

    Tölur í þús.kr.

    Rekstrar-niðurstaða

    Fjárfestingar

    Afborganir langtímalána og leiguskuldbindinga

    Samstæða A -hluta

    132.195

    187.000

    438.198

    Samstæða B-hluta

    319.118

    491.000

    181.862

    Samstæða A og B hluta

    451.313

    678.000

    620.060

    Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og starfsáætlanir stofnana fyrir árið 2014 með 6 atkvæðum. Fulltrúar Fjarðalistans sitja hjá.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - 2017

    Mál 1310194 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgi úr hlaði umræðu um 3ja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2015 til 2017.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Stefán Már Guðmundsson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans geta ekki samþykkt fjárhagsáætlun næstu þriggja ára. Helsta ástæða þess er sú að ekki er gert ráð fyrir færslu Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Bæjarfulltrúum Fjarðalistans hefur ekki orðið ágengt í því að fá færslu vegarins inn á áætlanir þrátt fyrir að hafa ítrekað afstöðu sína í þessu máli. Að öðru leyti vísum við til bókana í bæjarstjórn (m.a. á fundum nr.123 og nr.142), bæjarráði (m.a. nr.365) og eigna,- skipulags- og umhverfisnefnd (m.a. nr. 80) og málflutnings okkar í umræðum í bæjarstjórn. Við bæjarfulltrúar Fjarðalistans, viljum taka á fjárhagslegri stöðu sveitarfélagsins af ábyrgð og raunsæi og heilt yfir er það gert í þessum áætlunum en í ljósi framangreinds getum við ekki samþykkt þessar áætlanir og sitjum því hjá við afgreiðsu þeirra.

    Þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2015 til 2017 samþykkt með 6 atkvæðum. Fulltrúar Fjarðalistans sitja hjá.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - útsvarsálagning

    Mál 1310174 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar bar fram tillögu að útsvarsálagningu 2014.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að útsvarshlutfall ársins 2014 verði 14,48% af tekjum einstaklinga í Fjarðabyggð. Með þessu er útsvarsheimild sveitarfélagsins fullnýtt 2014.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld

    Mál 1310175 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir álagningarstofnum fasteignagjalda 2014 og afslætti af fasteignaskatti elli- og örorkulíferisþega.

    Til máls tók Jens Garðar Helgason.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2014 verði sem hér segir:

    Fasteignaskattur A verði 0,45 % af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur B verði 1,32 % af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur C verði 1,55 % af húsmati og lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,53 % af lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 2,00% af lóðarhlutamati.

    Vatnsgjald verði 0,31 % af húsmati.

    Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.

    Sorphreinsunargjald verði 21.700 kr. á heimili.

    Sorpeyðingargjald verði 10.300 kr.á heimili.

    Fjöldi gjalddaga verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.

    Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 9 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:

    a)Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 53.541 á árinu 2014.

    b)Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2013 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2014 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:.

    Einstaklingar:

    Brúttótekjur allt að kr. 2.579.465 - 100 % afsláttur

    Brúttótekjur yfir kr. 3.411.282 - 0 % afsláttur

    Hjón og samskattað sambýlisfólk:

    Brúttótekjur allt að kr. 3.917.878 - 100 % afsláttur

    Brúttótekjur yfir kr. 4.682.550 - 0 % afsláttur

  5. 5. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 7

    Mál 1311098 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 7 um breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2013.

    Enginn tók til máls.

    Framlagður viðauki nr. 7 um breytingu á fjárhagsáætlun ársins 2013, til að mæta auknum útgjöldum vegna fjárhagsaðstoðar, samþykktur með 9 atkvæðum.

  6. 6. 740 Strandgata 14 - Beiðni um breytingar á húsi

    Mál 1309047 Allur ferill málsins

    Beiðni Trölla ehf. um að breyta húsinu að Strandgötu 14 í Neskaupstað í gistirými. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd ákvað að grenndarkynna umsóknina. Athugasemdir undirritaðar af sjö af átta umsagnaraðilum bárust. Þær athugasemdir sem bárust í grenndarkynningu gáfu ekki tilefni til að hafna beiðni um breytta starfsemi í húsinu. Nefndin samþykkti breytta starfsemi í húsinu enda eru fordæmi fyrir slíkri starfsemi í íbúðahverfum annars staðar í sveitarfélaginu.

    Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Jens Garðar Helgason.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytta starfsemi í húsinu að Strandgötu 14 í Neskaupstað.

  7. 7. Bæjarráð - 364

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjaráðs nr. 364 og 365 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Eiður Ragnarsson og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 364 frá 11.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 7.1 Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL1305034
    2. 7.2 Ársreikningur 20121311011
    3. 7.3 Hugmyndir um samstarf/sameiningu leik- og grunnskóla á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði1305028
    4. 7.4 Beiðni um haustopnun 20131311003
    5. 7.5 Beiðni um fund með bæjarstjórn Fjarðabyggðar 13.nóvember1311005
    6. 7.6 Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1110202
    7. 7.7 Fyrsta sprenging í Norðfjarðargöngum1311047
    8. 7.8 Gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa1311013
    9. 7.9 Heimsókn forseta Íslands til Fjarðabyggðar1309044
    10. 7.10 Stöðuleyfi fyrir starfsmannaþorp á Haga1311043
    11. 7.11 Stjórnarfundir StarfA 20131302097
    12. 7.12 Fundargerðir stjórnar SSA - 20131301160
    13. 7.13 70.mál til umsagnar - um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum1311027
    14. 7.14 71.mál til umsagnar - um skráningu upplýsinga um umgegngisforeldra1311029
    15. 7.15 Hafnarstjórn - 1241311005F
    16. 7.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 781310019F
  8. 8. Bæjarráð - 365

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjaráðs nr. 364 og 365 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Eiður Ragnarsson og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 365 frá 18.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði1104080
    2. 8.2 Drög að fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga árið 20141310232
    3. 8.3 Safnahús á Egilsstöðum1212033
    4. 8.4 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20141307059
    5. 8.5 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2013 - Félagsmálanefnd1208105
    6. 8.6 Endurskoðun á umferðarsamþykkt1009017
    7. 8.7 Gjaldskrár í fræðslu-og frístundastofnunum1310094
    8. 8.8 Hugmyndir um samstarf/sameiningu leik- og grunnskóla á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði1305028
    9. 8.9 Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands1110202
    10. 8.10 Krafa vegna hönnunarvinnu hjúkrunarheimilisins í Fjarðabyggð1311063
    11. 8.11 Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju1309027
    12. 8.12 Framlenging samnings um ljósritun á höfundaréttarvörðu efni1311057
    13. 8.13 14.mál til umsagnar - hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum1311055
    14. 8.14 Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 20131303098
    15. 8.15 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - útsvarsálagning1310174
    16. 8.16 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld1310175
    17. 8.17 Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-20141203050
    18. 8.18 Fundargerðir félagsmálanefndar 20131301074
    19. 8.19 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 791311010F
    20. 8.20 Atvinnu- og menningarnefnd - 511311012F
    21. 8.21 Fræðslu- og frístundanefnd - 461311009F
  9. 9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 78

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 78, 79 og 80 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 78 frá 4.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 79

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 78, 79 og 80 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Eiður Ragnarsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 79 frá 11.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 80

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 78, 79 og 80 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Jens Garðar Helgason og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 80 frá 18.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  12. 12. Hafnarstjórn - 124

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 124 frá 5.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 12.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20131301250
    2. 12.2 Fundargerðir CI á árinu 20131303014
    3. 12.3 Aðalfundarboð - 24.október 20131310112
    4. 12.4 Ferðaleiðir - námskeið1310217
    5. 12.5 Vinnustofa fyrir mótun langtímastefnu fyrir hafnir landsins1310220
    6. 12.6 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
    7. 12.7 Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju1309027
    8. 12.8 Beiðni um viðræður um viðkomu Nörrænu í Fjarðarbyggðarhafnir1310223
    9. 12.9 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20141308088
  13. 13. Fræðslu- og frístundanefnd - 46

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 46 frá 13.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  14. 14. Atvinnu- og menningarnefnd - 51

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 51 frá 13.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  15. 15. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 48 frá 12.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.