Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Beiðni um haustopnun 2013

Mál 1311003 Fyrst á dagskrá 11. nóvember 2013, síðast 21. nóvember 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 364 liður 4

    Þennan lið dagskrár sátu fræðslustjóri og fjármálastjóri.

    Framlagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um opnun skíðasvæðisins í Oddsskarði nóvember og desember 2013.

    Bæjarráð samþykkir tillögu sem kemur fram í minnisblaðinu um að skíðasvæðið verði opnað í liðlega 3 vikur með takmarkaðri opnun fram til áramót. Um viðbótarkostnað vegna opnunar er að ræða.

    Bæjarráð áréttar að fjárhagsáætlun stofnunar verði höfð til viðmiðunar þegar opnunartími er ákveðinn fyrir árið og starfsáætlun endurspegli þær fyrirætlanir þannig að ekki komi til framúrkeyrslu áætlunar. Stofnunum Fjarðabyggðar ber að hlíta fjárhagsáætlunum skv. ákvörðunum bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 144 liður 7.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 364“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is