Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 364

11. nóvember 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 144 liður 7

    Fundargerðir bæjaráðs nr. 364 og 365 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O. Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Eiður Ragnarsson og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 364 frá 11.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1305034 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið dagskrár.

    Fram lagt yfirlit yfir rekstur sveitarfélagsins og stofnana fyrstu 9 mánuði ársins 2013.

    Yfirlit lagt fram sem trúnaðarmál.

  2. 2. Ársreikningur 2012

    Mál 1311011 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið dagskrár.

    Ársreikningur Búseta samvinnufélags lagur fram til staðfestingar.

    Bæjarráð staðfestir ársreikninginn.

  3. 3. Hugmyndir um samstarf/sameiningu leik- og grunnskóla á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði

    Mál 1305028 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri.

    Á 341. fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar, sem haldinn var 27. maí 2013, var eftirfarandi samþykkt: "Tillaga bæjarstjóra og fræðslustjóra til bæjarráðs er að auglýsa stöðu skólastjóra í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Í lok sumars 2013 fari fræðslustjóri í samráði við stjórnendur skólanna í þá vinnu að skoða og útfæra tillögur að leiðum sem stuðli að meira samstarfi og/eða sameiningu þessara stofnana í eina skólamiðstöð á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði með hagsmuni nemenda og rekstur sveitarfélagsins að leiðarljósi. Afrakstur vinnunnar verði kynntur bæjarráði ekki seinna en við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014."

    Fræðslustjóri reifaði málið og umræða tekin.

    Málið tekið fyrir á næsta fundi.

  4. 4. Beiðni um haustopnun 2013

    Mál 1311003 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sátu fræðslustjóri og fjármálastjóri.

    Framlagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um opnun skíðasvæðisins í Oddsskarði nóvember og desember 2013.

    Bæjarráð samþykkir tillögu sem kemur fram í minnisblaðinu um að skíðasvæðið verði opnað í liðlega 3 vikur með takmarkaðri opnun fram til áramót. Um viðbótarkostnað vegna opnunar er að ræða.

    Bæjarráð áréttar að fjárhagsáætlun stofnunar verði höfð til viðmiðunar þegar opnunartími er ákveðinn fyrir árið og starfsáætlun endurspegli þær fyrirætlanir þannig að ekki komi til framúrkeyrslu áætlunar. Stofnunum Fjarðabyggðar ber að hlíta fjárhagsáætlunum skv. ákvörðunum bæjarstjórnar.

  5. 5. Beiðni um fund með bæjarstjórn Fjarðabyggðar 13.nóvember

    Mál 1311005 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni SÁÁ um fund með bæjarstjórn Fjarðabyggðar 13. nóvember n.k.

    Bæjarfulltrúar og embættismenn taka á móti fulltrúum SÁÁ. Bæjarritara falið að finna fundartíma og boða hlutaðeigandi.

  6. 6. Framtíð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1110202 Allur ferill málsins

    Framlögð drög samþykkta fyrir Atvinnuþróunarsjóð Austurlands til umfjöllunar en óskað er eftir afstöðu viðkomandi sveitarfélags fyrir 23. nóvember 2013, um aðild að sjóðnum. Jafnframt fylgir með samþykkt stjórnar SSA frá 31. október sl. um árgjald til sjóðsins fyrir árið 2014 að fjárhæð 821. kr. íbúa.

    Bæjarráð fresta afstöðu til næsta fundar.

  7. 7. Fyrsta sprenging í Norðfjarðargöngum

    Mál 1311047 Allur ferill málsins

    Fyrsta sprenging í Norðfjarðargöngum verður fimmtudaginn 14. nóvember n.k. kl 16:00 við nýjan gangnamunna á Eskifirði.

    Bæjarráð fagnar þessum áfanga í þessu mikilvæga verkefni fyrir Austurland allt.

  8. 8. Gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa

    Mál 1311013 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Mannvirkjastofnunar, dagsett 30. október 2013 þar sem vakin er athygli á skyldum byggingarfulltrúa til að koma sér upp gæðastjórnunarkerfi fyrir árið 2015 og faggildingu fyrir árið 2018.

    Vísað til framkvæmdasviðs til úrvinnslu.

  9. 9. Heimsókn forseta Íslands til Fjarðabyggðar

    Mál 1309044 Allur ferill málsins

    Fram lagt þakkarbréf frá forseta Íslands þar sem þakkaðar eru mótttökur sem hann hlaut í heimsókn til Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð þakkar forsetahjónunum fyrir heimsóknina.

  10. 10. Stöðuleyfi fyrir starfsmannaþorp á Haga

    Mál 1311043 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Alcoa Fjarðaál þar sem óskað er eftir framlenginu á stöðuleyfi fyrir starfsmannaþorpið að Haga á Reyðarfirði til 30. september 2014.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  11. 11. Stjórnarfundir StarfA 2013

    Mál 1302097 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð stjórnar Starfa frá 1. nóvember s.l.

    Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  12. 12. Fundargerðir stjórnar SSA - 2013

    Mál 1301160 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga Austurlandi nr. 2 frá 31.október

  13. 13. 70.mál til umsagnar - um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum

    Mál 1311027 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar þingsályktun um að fela innanríkisráðherra að skipa þriggja manna starfshóp sem skili tillögum um það hvernig útfæra megi jafnt búsetuform barna sem búa jafnt og til skiptis hjá báðum foreldrum sínum á tveimur heimilum.

    Vísað til kynningar í félagsmálanefnd og fræðslu- og frístundanefnd.

  14. 14. 71.mál til umsagnar - um skráningu upplýsinga um umgegngisforeldra

    Mál 1311029 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar þingsályktunartillaga um að haldin verði skrá og sögulegt yfirlit yfir umgengnisforeldra, fjölda þeirra, kyn, hjúskaparstöðu og fjölda barna þeirra.

    Vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  15. 15. Hafnarstjórn - 124

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 5. nóvember lögð fram til kynningar.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 78

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 4. nóvember lögð fram til kynningar.