Hafnarstjórn, fundur 124
5. nóvember 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Benedikt Sigurjónsson, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 364 liður 15
Fundargerð hafnarstjórnar frá 5. nóvember lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 12
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 124 frá 5.nóvember 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013
Mál 1301250 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 360 dags. 18. október 2013. Til kynningar. Einnig kynnt svar innanríkisráðuneytisins vegna fyrirspurnar um löggildingu vigta sem fram kemur í fundargerðinni auk þess sem kynnt eru fyrirhuguð framlög til hafnarframkvæmda í fjárlögum fyrir 2014.
-
2. Fundargerðir CI á árinu 2013
Mál 1303014 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 1. október 2013 til kynningar.
-
3. Aðalfundarboð - 24.október 2013
Mál 1310112 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fiskmarkaðar Austurlands haldinn 24. október 2013. Framkvæmdastjóri sat fundin fyrir hafnarsjóð Fjarðabyggðar og gerði grein fyrir fundinum og kynnti ársreikning félagsins. Kynnt.
Fulltrúi hafnarsjóðs í stjórn er Steinþór Pétursson framkvæmdastjóri og varamaður er Guðmundur Þorgrímsson formaður hafnarstjórnar.
-
4. Ferðaleiðir - námskeið
Mál 1310217 Allur ferill málsins
Erindi frá Austurbrú um hvort hafnarsjóður hafi áhuga á að láta skipuleggja fyrir sig annað leiðsögumannanámskeið líkt og haldið var í samstarfi við hafnarsjóð vorið 2013. Hafnarstjórn hyggst ekki standa fyrir öðru námskeiði en heimilar Austurbrú að nýta þau gögn sem útbúin voru fyrir námskeiðið sem haldi var á siðasta vori.
-
5. Vinnustofa fyrir mótun langtímastefnu fyrir hafnir landsins
Mál 1310220 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 30.óktóber 2013 þar sem boðað er til vinnufundar um mótun langtímastefnu fyrir hafnir landsins, þann 15. nóvember 2013. Hafnarstjórn sendir tvo fulltrúa á fundinn.
-
6. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir stöðu mála varðandi framkvæmdir við löndunarbryggju smábáta á Norðfirði. Framkvæmdastjóri fór yfir málið.
-
7. Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju
Mál 1309027 Allur ferill málsins
Fundargerð frá opnun tilboða í "Norðfjörður - lenging Togarabryggju" dags. 24. október 2013.
Sjö tilboð bárust í verkið, en tvö tilboð uppfylltu ekki skilyrði um innsendingu gagna fyrir opnun og voru því ógild, en þau voru frá Íslenska gámafélaginu og AK-flutningum. Lægsta boð átti Hagtak upp á 48.596.900 kr. eða 107% af kostnaðaráætlun sem var 45.208.220 kr. Vegagerðin/siglingasvið hefur yfirfarið tilboðin og telur eðlilegt að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda. Hafnarsstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.
Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningi og leggja hann fyrir bæjarráð til staðfestingar.
-
8. Beiðni um viðræður um viðkomu Nörrænu í Fjarðarbyggðarhafnir
Mál 1310223 Allur ferill málsins
Erindi frá P/F Smyril Line dags. 30. október 2013 þar sem óskað er eftir viðræðum um viðkomu Nörrænu í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra og formanni hafnarstjórnar að eiga viðræður við fyrirtækið.
-
9. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2014
Mál 1308088 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir Fjárhagsáætlun og starfsáætlun lögð fram fyrir árið 2014. Gerð var grein fyrir breytingum á áætluninni frá síðust umfjöllun hafnarstjórnar hvað varðar verkefnið á Stöðvarfirði