Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 125

10. desember 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 368 liður 20

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 125 frá 10. desember lögð fram til kynningar

  • Bæjarstjórn, fundur 146 liður 4

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 10. desember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir CI á árinu 2013

    Mál 1303014 Allur ferill málsins

    Skýrsla frá ferð starfsmanns Cruise Iceland og formanns til USA í 18 til 22. nóvember sl. Kynnt.

  2. 2. Umsókn um undanþágu frá hafnsögu

    Mál 1311080 Allur ferill málsins

    Umsókn frá Thorship dags. 15. nóvember 2013 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Oleg Nekipelov skipstjóra á M/V Alexia að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsöguskildu fyrir Oleg Nekipelov skipstjóra á Mv. Alexia.

  3. 3. Þekja frystihúsbryggju Eskifirði

    Mál 1203080 Allur ferill málsins

    Erindi frá Einari Dalberg Einarssyni dags. 23. október 2013, þar sem lögð er fram krafa um viðbótargreiðslu vegna endurbyggingar þekju á Eskifirði. Auk bréfs Einars lá fyrir fundinum minnisblað frá eftirlitsmanni vegna málsins. Hafnarstjórn hafnar kröfu verktaka um viðbótargreiðslu vegna endurbyggingar þekju á Eskifirði og telur ekki rök fyrir frekari greiðslum.

  4. 4. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

    Mál 1210091 Allur ferill málsins

    Framhald umræðu frá fundi hafnarstjórnar þann 8. október 2013 um 2.áfanga Mjóeyrarhafnar og skýrslu unna af Vegagerðinni, siglingadeild, vegna málsins. Hafnarstjórn sammála um að hefja undirbúning að gerð viðlegukants skv. tillögu 3 í skýrslu siglingadeildar Vegagerðarinnar með þeirri breytingu að um verði að ræða 130 metra kant