Hafnarstjórn, fundur 126
14. janúar 2014, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Björgvin Már Hansson, varamaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 148 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 14.janúar 2014 samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. NORA - Experience exchange project
Mál 1307034 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar minnisblað bæjarritara vegna stöðu NAPLN verkefnisins. Vísað til hafnarstjórnar frá bæjarráði. Kynnt.
-
2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013
Mál 1301250 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar hafnarsambands Íslands nr. 361 frá 13. desember 2013. Kynnt.
-
3. Fundargerðir CI á árinu 2013
Mál 1303014 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 2. desember 2014. Kynnt.
-
4. Seatrade Miami 11-13. mars 2014
Mál 1312077 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruise Icelanda þar sem verið er að kanna þátttöku á Seatrade Miami í mars 2014.
Ekki er gert ráð fyrir að hafnirnar sendi fulltrúa en formaður CI ásamt starfsmanni samtakanna frá Íslandsstofu fari og kynni hafnirnar eins og ákveðið var á aðalfundi Cruise Iceland síðasta vor.
Hafnarstjórn staðfestir þátttöku í sameiginlegum fulltrúa á sýningunni.
-
5. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu verkefnisins en við loka afgreiðslu fjárhagsáætlunar var ákveðið að fresta upphafi verksins til 2015. Hafnarstjórn samþykkti að láta ljúka gerð útboðsgagna fyrir verkið en það verk hefur verið í vinnslu og er langt komið.
-
6. Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða
Mál 1304098 Allur ferill málsins
Farið yfir umfjöllun á sameiginlegum fundi bæjarstjórnar, eigna- skipulags og bygginganefdar og hafnarstjórnar sem haldinn var fimmtudaginn 9. janúar sl.
-
7. Grjótvörn við Strandgötu 88 og 94 Eskifirði
Mál 1312093 Allur ferill málsins
Erindi frá Sporði hf. dags. 20. desember 2013 þar sem lýst er vandræðum vegna ágangs sjávar og óskað eftir að hafnarstjórn taki málið í sínar hendur. Hafnarstjórn vísar erindinu til bæjarráðs og eigna- skipulags og umhverfisnefndar að móta stefnu varðandi grjótvarnir lóða við sjó. Hafnarstjórn bendir á að í þessu tiltekna máli var átt við grjótvörn utan við húsið þegar skólplögn sem þar er var lengd.
-
8. Tillögur að breyttum reglum um skráningu og vigtun sjávarafla
Mál 1312078 Allur ferill málsins
Tillögur samstarfsnefndar um breytingar á vigtun og skráningu sjávarafla. Framkvæmdastjóra er falið að benda á að nauðsynlegt sé að nefndin sé í góðu samráði við hagsmunaaðila.
-
9. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211018 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri fór yfir mál varðandi ramp sunnan á fyllingunni og hversu lagt er í marbakka. Framkvæmdastjóra falið að vinna máli í samræmi við umræðu á fundinum.