Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 148

23. janúar 2014, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Stefán Már Guðmundsson, varamaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 370

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Elvar Jónsson, Stefán Már Guðmundsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs frá 13. janúar 2014 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Gjaldskrár Fjarðabyggðar 2014 breytingar1401094
    2. 1.2 740 Blómsturvellir 41 - Hlaða1205104
    3. 1.3 169. mál.til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stofnun Hofsjökulsþjóðgarðs1401066
    4. 1.4 202. mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um flutning stjórnsýslu um málefni hreindýra1401038
    5. 1.5 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 831401002F
  2. 2. Bæjarráð - 371

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 20. janúar 2014 staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Safnahús Laufskógum 1 Egilsstöðum - húseign
    2. 2.2 Breiðablik 2014 gjaldskrá
    3. 2.3 Grjótvörn við Strandgötu 88 og 94 Eskifirði
    4. 2.4 Húsnæðismál Tónskóla Neskaupstaðar
    5. 2.5 Ósk um að verði reist ný fjárrétt í Eskifjarðardal
    6. 2.6 Spurningar til bæjarráðs um ýmis mál
    7. 2.7 Verkefnið Nýir íbúar á góðum stað
    8. 2.8 Tilnefning í fagráð um hafnamál
    9. 2.9 Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 - Umsögn
    10. 2.10 Boðsbréf vegna formlegrar spennusetningar á Stuðlum
    11. 2.11 Gjaldskrárhækkanir - Áríðandi bréf frá forseta ASÍ
    12. 2.12 Athugasemdir vegna frumvarps til laga um fólksflutninga í atvinnuskyni
    13. 2.13 Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
    14. 2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 84
    15. 2.15 Hafnarstjórn - 126
    16. 2.16 Atvinnu- og menningarnefnd - 53
    17. 2.17 Fræðslu- og frístundanefnd - 48
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 83

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 6. janúar 2014 samþykkt með 9 atkvæðum.

  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 84

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. janúar 2014 samþykkt með 9 atkvæðum.

  5. 5. Hafnarstjórn - 126

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 14.janúar 2014 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 NORA - Experience exchange project1307034
    2. 5.2 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20131301250
    3. 5.3 Fundargerðir CI á árinu 20131303014
    4. 5.4 Seatrade Miami 11-13. mars 20141312077
    5. 5.5 Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur1211017
    6. 5.6 Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða1304098
    7. 5.7 Grjótvörn við Strandgötu 88 og 94 Eskifirði1312093
    8. 5.8 Tillögur að breyttum reglum um skráningu og vigtun sjávarafla1312078
    9. 5.9 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur1211018
  6. 6. Fræðslu- og frístundanefnd - 48

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Páll Björgvin Guðmundsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 15. janúar 2014 að undanskildum lið 6.4. samþykkt með 9 atkvæðum.

  7. 7. Atvinnu- og menningarnefnd - 53

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 15. janúar 2014 samþykkt með 9 atkvæðum.

  8. 8. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014

    Mál 1401186 Allur ferill málsins

    Til máls tóku: Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Óskar Þór Hallgrímsson vék af fundi bæjarstjórnar 17:35

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 50 frá 16. janúar 2014 samþykkt með 8 atkvæðum.

  9. 9. 755 - Deiliskipulag Óseyrar, Stöðvarfirði

    Mál 1211164 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Óseyrar í Stöðvarfirði. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags. 15. október 2013 og felur meðal annars í sér að sköpuð er umgjörð um ferðaþjónustu, frístundasvæði og skógrækt. Gert er ráð fyrir byggingu smáhýsa, geymslum eða öðrum byggingum tengdum ferðaþjónustu.

    Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

  10. 10. Breiðablik 2014

    Mál 1103057 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi reglum úr hlaði.

    Fram eru lagðar nýjar reglur fyrir þjónustuíbúðir aldraðra.

    Til máls tók Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn staðfestir reglur um þjónustuíbúðir fyrir aldraða með 8 atkvæðum.

  11. 11. Safnahús Laufskógum 1 Egilsstöðum - húseign

    Mál 1401169 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi samningi úr hlaði.

    Framlögð drög að samningi vegna Safnahússins á Egilsstöðum ásamt gögnum. Um er að ræða leigusamning um húsið. Bæjarráð hefur samþykkt tillögu sem gengur út á að Fljótsdalshérað leysi til sín alla eignarhluti Minjasafns Austurlands og Héraðsskjalasafns Austurland í Safnahúsinu á Egilsstöðum. Gerðir verða langtímaleigusamningar við söfnin, þar sem leigugreiðslur gangi upp í söluverðmæti hússins yfir 12 ára tímabil.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum samning um Safnahúsið á Egilsstöðum sbr. framlögð drög og felur bæjarstjóra undirritun gagna honum tengdum.