Gjaldskrár Fjarðabyggðar 2014 breytingar
Mál 1401094 Fyrst á dagskrá 13. janúar 2014, síðast 23. janúar 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 370 liður 1
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að eftirfarandi gjaldskrár sem snúa að barnafólki, taki breytingum sem hér segir frá 1. janúar 2014. Jafnframt felur bæjarráð fjármálastjóra að semja viðauki við fjárhagsáætlun 2014 og leggja fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
Lesa alla bókunina (181 orð til viðbótar)
Gjaldskrár leikskóla, skóladagheimila og tónskóla. Áður samþykkt hækkun fyrrgreindra gjaldskráa um 3 til 10 % frá 1. janúar 2014 er dregin til baka og verða gjaldskrár þær sömu og voru á árinu 2013. Hafa ofangreindar gjaldskrár því ekki hækkað frá 1.janúar 2012 en hækkun verðlags á tímabilinu er 8,5%.
Ekki var gert ráð fyrir hækkun á gjaldskrám í mötuneytum, íþróttamiðstöðvum og skíðamiðstöð sem lítur að börnum og unglingum að 18 ára aldri og stendur sú ákvörðun. Þá er aldursviðmið hækkað úr 16 í 18 ár í gjaldskrám íþróttamiðstöðva og skíðamiðstöðvar sem lækkar gjald í aldursbilinu umtalsvert.
Áætlaður kostnaður þessara breytinga er um 5 millj. kr. Til að mæta tillögu um að falla frá samþykkt um gjaldskrárbreytingar er gert ráð fyrir að afgangur ársins og handbært fé lækki um sömu upphæð.
Greinargerð. Sveitarfélagið Fjarðabyggð vill stuðla eins og nokkur kostur er að stöðugu verðlagi í landinu og afturkallar því hækkanir á gjaldskrám sínum eins og tillagan gerir ráð fyrir. Sveitarfélagið hefur undanfarin ár stillt gjaldskrárhækkunum í hóf og leitað fremur hagræðingar í starfsemi sinni og aukið tekjur með auknum atvinnutækifærum í sveitarfélaginu.
-
Bæjarstjórn, fundur 148 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 370“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.