Safnahús Laufskógum 1 Egilsstöðum - húseign
Mál 1401169 Á dagskrá 23. janúar 2014. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Menning og söfn
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarstjórn, fundur 148 liður 11
Bæjarstjóri fylgdi samningi úr hlaði.
Framlögð drög að samningi vegna Safnahússins á Egilsstöðum ásamt gögnum. Um er að ræða leigusamning um húsið. Bæjarráð hefur samþykkt tillögu sem gengur út á að Fljótsdalshérað leysi til sín alla eignarhluti Minjasafns Austurlands og Héraðsskjalasafns Austurland í Safnahúsinu á Egilsstöðum. Gerðir verða langtímaleigusamningar við söfnin, þar sem leigugreiðslur gangi upp í söluverðmæti hússins yfir 12 ára tímabil.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 8 atkvæðum samning um Safnahúsið á Egilsstöðum sbr. framlögð drög og felur bæjarstjóra undirritun gagna honum tengdum.