Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 147

9. janúar 2014, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Stefán Már Guðmundsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 369

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 6. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 81401001
    2. 1.2 Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna1110166
    3. 1.3 Reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts1312097
    4. 1.4 Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar1312079
    5. 1.5 Reglur um upplýsingatæknimál1310150
    6. 1.6 Starfsleyfi fyrir Gámaþjónustu Austurlands vegna starfseminnar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.1306116
    7. 1.7 Fjarskiptamál í Mjóafirði1305135
    8. 1.8 NORA - Experience exchange project1307034
    9. 1.9 Sameining lífeyrissjóða sveitarfélaga1204044
    10. 1.10 Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri lífeyrisþega í fyrrum Lífeyrissjóði Neskaupstaðar1401029
    11. 1.11 Veittur styrkur til viðgerðar á Lúðvíkshúsi1401003
    12. 1.12 Veittur styrkur til viðgerðar á bragga/bröggum Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði1401004
    13. 1.13 Veitur styrk til endurbyggingar steinsteyptrar fjárréttar í Norðfirði1401002
    14. 1.14 Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 20131302044
    15. 1.15 Ársreikningur 2012 - Veturhús1312092
    16. 1.16 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20131310153
    17. 1.17 Aðalfundur - Sjóminjasafn Austurlands 12. september 20131309037
    18. 1.18 Fundargerðir stjórnar SSA - 20131301160
    19. 1.19 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20131301338
  2. 2. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 8

    Mál 1401001 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.

    Viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun 2013 er varðar símenntun, námsstyrki, veikindapott og liðsstyrksverkefni, til afgreiðslu bæjarstjórnar. Viðaukinn fjallar einvörðungu um tilfærslu fjármuna milli sviða innan fjárhagsáætlunar aðalsjóðs fyrir árið 2013.

    Enginn tók til máls.

    Viðauki 8 er staðfestur af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  3. 3. Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna

    Mál 1110166 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Breyttar reglur um afskriftarnefnd viðskiptakrafna lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Enginn tók til máls.

    Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  4. 4. Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar

    Mál 1312079 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Enginn tók til máls.

    Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  5. 5. Reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts

    Mál 1312097 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Endurskoðaðar reglur, um styrki vegna fasteignaskatts m.t.t. endurgerðar húsa, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  6. 6. Reglur um upplýsingatæknimál

    Mál 1310150 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Reglur um tölvpóst og netnotkun annarsvegar og reglur um almenna tölvunotkun starfsmanna upplýsingatæknikerfa hinsvegar, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Enginn tók til máls.

    Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.