Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts

Mál 1312097 Fyrst á dagskrá 6. janúar 2014, síðast 9. janúar 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 369 liður 3

    Fram lagðar endurskoðaðar reglur um styrki vegna fasteignaskatts m.t.t. endurgerðar húsa til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarráð leggur til afmarkaðar breytingar á drögunum varðandi afsláttarhlutfall og tímalengd.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar staðfestingu þeirra til bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 147 liður 5

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Endurskoðaðar reglur, um styrki vegna fasteignaskatts m.t.t. endurgerðar húsa, lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Reglurnar eru staðfestar af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 147 liður 1.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 369“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is