Bæjarráð, fundur 369
6. janúar 2014, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 147 liður 1
Fundargerð bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 6. janúar s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 8
Mál 1401001 Allur ferill málsins
Fram lagður viðauki nr.8 við fjárhagsáætlun 2013 vegna símenntunar, námsstyrkja, veikindapotts og liðsstyrksverkefnis.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.
-
2. Breyting á reglum um afskriftanefnd viðskiptakrafna
Mál 1110166 Allur ferill málsins
Fram lagðar til staðfestingar breyttar reglur um afskriftarnefnd viðskiptakrafna til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar staðfestingu þeirra til bæjarstjórnar.
-
3. Reglur um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts
Mál 1312097 Allur ferill málsins
Fram lagðar endurskoðaðar reglur um styrki vegna fasteignaskatts m.t.t. endurgerðar húsa til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð leggur til afmarkaðar breytingar á drögunum varðandi afsláttarhlutfall og tímalengd.
Bæjarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum fyrir sitt leyti og vísar staðfestingu þeirra til bæjarstjórnar.
-
4. Reglur um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar
Mál 1312079 Allur ferill málsins
Núverandi leiðbeiningar/fyrirmæli um greiðslu ferðakostnaðar eru hér settar fram í einni reglu til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarráð leggur til afmarkaðar breytingar á drögunum.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar staðfestingu þeirra til bæjarstjórnar.
-
5. Reglur um upplýsingatæknimál
Mál 1310150 Allur ferill málsins
Fram lagðar reglur í upplýsingatæknimálum fyrir Fjarðabyggð til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.
a) Reglur um tölvupóst og netnotkun
b) Regla um almenna tölvunotkun starfsmanna upplýsingatæknikerfa.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar staðfestingu þeirra til bæjarstjórnar.
-
6. Starfsleyfi fyrir Gámaþjónustu Austurlands vegna starfseminnar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
Mál 1306116 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar kæra frá Ásmundi Ásmundssyni, Ragnari Sigurðssyni og Samúel K Sigurðssyni til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindanefndar vegna starfsleyfis Gámaþjónustu Austurlands að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
-
7. Fjarskiptamál í Mjóafirði
Mál 1305135 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað um stöðu fjarskiptamála Mjófirðinga en endurteknar truflanir hafa verið á síma- og gagnasambandi við Mjóafjörð. Ísingarvandamál undanfarið hafa gert það að verkum að allt fjarskiptasamband við Mjóafjörð liggur niðri.
Bæjarráð telur óásættanlegt að fjarskiptasamband sé ekki tryggt við Mjóafjörð og felur bæjarstjóra að leita lausna með Mílu hf og Símanum hf þannig að fjarskiptasamband við byggðina sé öruggt samanber bréf forstjóra Símans síðasta sumar.
-
8. NORA - Experience exchange project
Mál 1307034 Allur ferill málsins
Fram lagt til kynningar minnisblað bæjarritara vegna stöðu NAPLN verkefnisins.
Vísað til hafnarstjórnar og bæjarritara falið að fylgja verkefninu eftir.
-
9. Sameining lífeyrissjóða sveitarfélaga
Mál 1204044 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar fundargerð síðasta stjórnarfundar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar en stjórn sjóðsins hefur lokið sínum störfum og sjóðurinn sameinaðist Lífeyrissjóði sveitarfélaga 1. júlí s.l. Bæjarritari gerir grein fyrir lokaniðurstöðu sameiningar sjóðanna. Gögn um verðmat lögð fram á fundi sem trúnaðarmál.
Hlutdeild Fjarðabyggðar í sameiginlegu eignasafni B-deildar LSS 12,390%
Bæjarráð samþykkir hlutdeildina í safninu fyrir sitt leyti.
-
10. Endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri lífeyrisþega í fyrrum Lífeyrissjóði Neskaupstaðar
Mál 1401029 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf frá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga þar sem lagt er til að endurgreiðsluhlutfall vegna eftirlaunaskuldbindinga sveitarfélagsins vegna b-deildar LSS verði óbreytt árið 2014 eða 66%.
Bæjarráð samþykkir tillögu um endurgreiðsluhlutfall fyrir árið 2014, 66%.
-
11. Veittur styrkur til viðgerðar á Lúðvíkshúsi
Mál 1401003 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Forsætisráðuneytisins þar sem tilkynnt er um styrkveitingu til endurgerðar Lúðvíkshússins á Norðfirði að fjárhæð 10 milljónir kr.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar Forsætisráðuneytinu fyrir veittan stuðning við mikilvægt verkefni.
-
12. Veittur styrkur til viðgerðar á bragga/bröggum Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði
Mál 1401004 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Forsætisráðuneytisins þar sem tilkynnt er um styrkveitingu til endurgerðar bragga við Stríðsárasafnið á Reyðarfirði að fjárhæð 6 milljónir kr.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar Forsætisráðuneytinu fyrir veittan stuðning við mikilvægt verkefni.
-
13. Veitur styrk til endurbyggingar steinsteyptrar fjárréttar í Norðfirði
Mál 1401002 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Forsætisráðuneytisins þar sem tilkynnt er um styrkveitingu til endurgerðar fjárréttar í Norðfirði að fjárhæð 2 milljónir kr.
Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og til úrvinnslu framkvæmdasviðs.
Bæjarráð Fjarðabyggðar þakkar Forsætisráðuneytinu fyrir veittan stuðning við mikilvægt verkefni.
-
14. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 2013
Mál 1302044 Allur ferill málsins
Fram lagt yfirlit yfir íbúaþróun í Fjarðabyggð.
Bæjarráð fagnar þeirri þróun að íbúum sveitarfélagsins hefur fjölgað talsvert á árinu og eru um 4.670 í lok ársins.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
15. Ársreikningur 2012 - Veturhús
Mál 1312092 Allur ferill málsins
Fram lagður ársreikningur Veturhúsa ehf fyrir árið 2012 ásamt minnisblaði um stöðu félagsins.
-
16. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2013
Mál 1310153 Allur ferill málsins
Fram lögð ársskýrsla Skólaskrifstofu Austurlands fyrir árið 2012 ásamt ársreikningi og skýrslu stjórnarformanns.
Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
17. Aðalfundur - Sjóminjasafn Austurlands 12. september 2013
Mál 1309037 Allur ferill málsins
Fram lagður til kynningar ársreikningur Sjóminjasafns Austurlands fyrir árið 2012 ásamt fundargerð aðalfundar.
Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
18. Fundargerðir stjórnar SSA - 2013
Mál 1301160 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar 3. fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 10. desember s.l.
-
19. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013
Mál 1301338 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 811 frá 13. desember s.l. lögð fram til kynningar.