Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 8
Mál 1401001 Fyrst á dagskrá 6. janúar 2014, síðast 9. janúar 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 369 liður 1
Fram lagður viðauki nr.8 við fjárhagsáætlun 2013 vegna símenntunar, námsstyrkja, veikindapotts og liðsstyrksverkefnis.
Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 147 liður 2
Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.
Viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun 2013 er varðar símenntun, námsstyrki, veikindapott og liðsstyrksverkefni, til afgreiðslu bæjarstjórnar. Viðaukinn fjallar einvörðungu um tilfærslu fjármuna milli sviða innan fjárhagsáætlunar aðalsjóðs fyrir árið 2013.
Enginn tók til máls.
Viðauki 8 er staðfestur af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 147 liður 1.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 369“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.