Fjarskiptamál í Mjóafirði
Mál 1305135 Fyrst á dagskrá 8. júlí 2013, síðast 9. janúar 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Mjóifjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 346 liður 4
Bréf forstjóra Símans frá 26.júní er varðar símasamband í Mjóafirði lagt fram til kynningar.
Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að tryggt sé að traust fjarskiptasamband sé við Mjóafjörð.
-
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 8.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 346“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2014
Bæjarráð, fundur 369 liður 7
Fram lagt minnisblað um stöðu fjarskiptamála Mjófirðinga en endurteknar truflanir hafa verið á síma- og gagnasambandi við Mjóafjörð. Ísingarvandamál undanfarið hafa gert það að verkum að allt fjarskiptasamband við Mjóafjörð liggur niðri.
Bæjarráð telur óásættanlegt að fjarskiptasamband sé ekki tryggt við Mjóafjörð og felur bæjarstjóra að leita lausna með Mílu hf og Símanum hf þannig að fjarskiptasamband við byggðina sé öruggt samanber bréf forstjóra Símans síðasta sumar.
-
Bæjarstjórn, fundur 147 liður 1.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 369“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.