Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 127

11. febrúar 2014, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 375 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 127 frá 11.febrúar 2014 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 150 liður 6

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 11. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur safna og tjaldsvæða sumarið 2014

    Mál 1401117 Allur ferill málsins

    Hugmynd um útfærslu á rekstri Safnahússins í Neskaupstað sumarið 2014. Vísað er til afnota-og umráðasamnings um Safnahúsið, Egilsbraut 2 í Neskaupstað gr. 12.2. Fyrir liggur beiðni Safnaráðs hússins um að útvíkka starfsemina í húsinu skv. meðfylgjandi drögum að Samningskaupalýsingu. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, formaður atvinnu-og menningarnefndar og fulltrúi í safnaráði gerði grein fyrir málinu. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að heimila safnaráði að bjóða reksturinn út m.v. fyrirliggjandi samningskaupalýsingu. Ástu var þökkuð koman og yfirgaf hún síðan fundinn.

  2. 2. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2014

    Mál 1401229 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 362 dags. 17. janúar 2014. Kynnt.

  3. 3. Fundargerðir CI á árinu 2014

    Mál 1401230 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 24. janúar 2014. Til kynningar.

  4. 4. Aðalfundur Cruise Iceland á Ísafirði 23. maí 2014

    Mál 1402067 Allur ferill málsins

    Tilkynning um aðalfund Cruise Iceland sem haldinn verður á Ísafirði 23. maí 2014. Framkvæmdastjóri verður fulltrúi Fjarðabyggðarhafna á aðalfundinum.

  5. 5. Hafnar- og vistifjardabyggd vefur

    Mál 1402073 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um endurnýjun á vef Fjarðabyggðarhafna og vefsmíði ferðaþjónustuvefs. Fyrir fundinum lá minnisblað vegna málsins frá markaðs og upplýsingafulltrúa. Hafnarstjórn samþykkir að fara í endurnýjun á vef Fjarðabyggðarhafna á grundvelli minnisblaðs.

  6. 6. Undanþága frá hafnsöguskyldu

    Mál 1402028 Allur ferill málsins

    Umsókn frá Thorskip dags. 6. febrúar 2014 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Grzegorz Kowalewski skipstjóra á M/V Jan að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Grzegorz Kowalewski skipstjóra á M/V Jan.

  7. 7. Tilnefning í fagráð um hafnamál

    Mál 1401168 Allur ferill málsins

    Fram lagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um tilnefndingu fulltrúa í fagráð um hafnarmál. Óskað er eftir tilnefningu aðal-og varamanns í ráðið, karls og konu.

    Bæjarráð tilnefnir Pál Björgvin Guðmundsson og Eydísi Ásbjörnsdóttur í fagráð um hafnarmál. Vísað til kynningar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn lýsir furðu sinni á að fagnefnd um málefnið skuli ekki vera fengin til að velja einstaklinga/sérfræðinga í fagráð um hafnarmál. Hafnarstjórn furðar sig á vinnubrögðum bæjarráðs.

  8. 8. Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða

    Mál 1304098 Allur ferill málsins

    Ný útgáfa af staðarvalsskýrslu vegna hafnsækinnar starfsemi kynnt.

  9. 9. Gjaldskrá Fjarðabyggðahafna

    Mál 1401190 Allur ferill málsins

    Erindi frá Eimskip Ísland ehf dags. 16. janúar 2014, þar sem skorað er að Fjarðabyggðarhafnir að draga til baka þær verðhækkanir á gjaldskrá sem tóku gildi þann 1. janúar sl.

    Hafnarstjórn hafnar erindinu og felur framkvæmdastjóra að svara Eimskip í samræmi við umræðu á fundinum.

  10. 10. Mjóifjörður - Endurnýjun þekju

    Mál 1402032 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrirhugaða framkvæmd við endurnýjun þekju í Mjóafirði. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að setja framkvæmdina af stað.

  11. 11. Endurbygging á Sæbergsbryggju á Eskifirði

    Mál 1402030 Allur ferill málsins

    Minnisblað framkvæmdastjóra vegna Sæbergsbryggju á Eskifirði kynnt ásamt mati bryggjusmiðs á bryggjunni. Hafnarstjórn vísar málinu til umfjöllunar við vinnu fjárhagsáætlunar 2015.

  12. 12. Hafnamál Mjóeyrarhöfn

    Mál 1401247 Allur ferill málsins

    Rætt um málefni Mjóeyrarhafnar og skilning aðila hvað varðar forgang og fleira. Kynnt.

  13. 13. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta

    Mál 1301313 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri gerið grein fyrir stöðu mála, en verktaki er langt kominn með verkið og reiknar með að ljúka því í febrúar, en verklok voru áætluð 15. apríl í verksamningi.

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að láta útbúa gögn vegna kants og þekju að baki löndunarkantinum og láta vinna verkið.

  14. 14. Norðfjörður - Netagerðarbryggja viðgerð skolun undan landvegg

    Mál 1402054 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir því að skolað hafi undna landvegg Netagerðarbryggju á Norðfirði og reikna megi með að nokkur kostnaður sé í að gera við bryggjuna. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að fá tillögu að viðgerð á bryggjunni.