Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 128

4. mars 2014, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Björgvin Már Hansson, varamaður
  • Árni Þórhallur Helgason, varamaður
  • Guðrún M.Ó.Steinunnardóttir, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 377 liður 19

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. mars lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 152 liður 2

    Til máls tóku: Stefán Már Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Eiður Ragnarsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 740 - Deiliskipulag Miðbær

    Mál 1302169 Allur ferill málsins

    Fyrstu drög tillögu að deiliskipulagi miðbæjar á Norðfirði var lagt fram til umfjöllunar á fundi ESU þann 24. febrúar 2014.

    ESU líst vel á framkomna tillögu og vísar henni til umsagnar hafnarstjórnar.

    Hafnarstjórn fól framkvæmdastjóra að koma umræddum athugasemdum á framfæri.

  2. 2. Beiðni um umsögn vegna skipulags- og matslýsingar fyrir Eyri við Reyðarfjörð

    Mál 1402156 Allur ferill málsins

    Erindi frá skipulagsfulltrúa Fjarðabyggðar dags. 24. febrúar 2014 þar sem óskað er umsagnar á skipulags- og matslýsingar vegna breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027, Eyri í Reyðarfirði, hafnar og iðnaðarstarfsemi. Hafnarstjórn samþykkir skipulags og matslýsingu fyrir Eyri í Reyðarfirði með fjórum atkvæðum en Guðrún Óladóttir sat hjá.

  3. 3. Málefni Norðfjarðarhafnar

    Mál 1402181 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fundi sem hann ásamt bæjarstjóra áttu með framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar þar sem farið var yfir ýmis hafnarmál. Framkvæmdastjóra falið að skoða möguleika á meiri viðlegu. Málið kynnt.

  4. 4. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál

    Mál 1210103 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi kynningamál vegna þjónustu við oliuleit. Kynnt.

  5. 5. Aðalfundur Cruise Europe 6 til 8 maí 2014

    Mál 1402175 Allur ferill málsins

    Boð á aðalfund Cruise Europe haldinn í Riga í Lettlandi 6. til 8. maí 2014. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á aðalfundinn.