Bæjarráð, fundur 377
17. mars 2014, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 152 liður 1
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Stefán Már Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Eiður Ragnarsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 17. mars að undanskildum lið 2 í fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1403072 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt fram yfirlit um rekstur málaflokka og stofnana í janúar 2014.
Yfirlit lagt fram sem trúnaðarmál.
-
2. Beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda
Mál 1402182 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Ferðaþjónustan á Mjóeyri hefur lagt fram ósk um niðurfellingu á gatnagerðargjöldum með vísan til 6. gr. laga nr. 153/2006.
Framlagt minnisblað fjármálastjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa.
Bæjarráð hafnar erindinu þar sem ekki eru forsendur fyrir lækkuninni.
-
3. Hugsanleg helgaropnun í Skíðamiðstöð Austurlands í Oddsskarði í maí/júní 2014
Mál 1403041 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Fram lagt minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa. Lögð er til opnun og gert ráð fyrir að hafa lyftu 1 og topplyftu opna föstudag til sunnudags í 9 helgar. Viðbótarkostnaður er áætlaður 3,6 milljónir en viðbótartekjur um 1,8 milljónir. Ástæðan fyrir því að verið er að skoða helgaropnun er óvenjumikið snjómagn á skíðasvæðinu og erfiður vetur bæði hvað varðar veðurfar og bilanir í snjótroðara.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að farið verði í þessa tilraun og óskar eftir því við bæjarráð að rammi skíðamiðstöðvar verði hækkaður sem nemur nettókostnaði af þessari viðbótarþjónustu. Í minnisblaðinu er áætlaður nettókostnaður við helgaropnun í maí og júní 2014, u.þ.b. 1.8 milljónir.
Bæjarráð samþykkir tillöguna. Veitt er af liðnum óráðstafað 21-69- 1,5 milljón kr. til verkefnisins.
-
4. Viðbótarkostnaður fyrir sundlaugina á Norðfirði vegna olíukyndingar
Mál 1403045 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Fram lagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa þar sem gerð er grein fyrir viðbótarkostnaði fyrir sundlaugina á Norðfirði vegna olíukyndingar vegna skerðingar á raforku en fjarvarmaveitan á Norðfirði er nú kynnt með olíu. Útlit er fyrir að þessi staða vari út mars og apríl. Heildarkostnaðaraukning fyrir sundlaugina gæti því numið 6 og ½ milljón á umræddu tímabili.
Fram lagt til kynningar.
Mannvirkjastjóra og fjármálastjóra falið að fylgjast með þróun útgjalda og leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2014 þegar fyrir liggur endanlegur kostnaður fjarvarmaveitunnar vegna skerðingarinnar.
-
5. Kauptilboð í Nesbakka 9 101
Mál 1403036 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt fram minnisblað frá eigna- og framkvæmdafulltrúa, dagsett 7. mars 2014, varðandi kauptilboð í Nesbakka 9 (íbúð 03-101) Norðfirði að upphæð 7,4 milljónir kr. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tilboðið og vísar afgreiðslunni til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að selja íbúðina, samþykkir kauptilboðið og felur bæjarstjóra að undirrita gögn tengd sölunni.
-
6. Sala á íbúð á Nesbakka 3 740 - fastanúmer 216-9504
Mál 1403003 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt fram minnisblað frá eigna- og framkvæmdafulltrúa, dagsett 7. mars 2014, varðandi kauptilboð í Nesbakka 3 (íbúð 01-102) Norðfirði að upphæð 7,5 milljónir kr. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tilboðið og vísar afgreiðslunni til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að selja íbúðina, samþykkir kauptilboðið og felur bæjarstjóra að undirrita gögn tengd sölunni.
-
7. Kaup/leiga á húsnæði Fjarðabyggðar, Egilsbraut 4 740 Nesk.
Mál 1403074 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Fram lagt bréf G.V. Hljóðkerfaleigu þar sem óskað er eftir húsnæðinu að Egilsbraut 4 á Norðfirði til leigu til 6 mánaða.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni um leigu á húsnæðinu þar sem það er ekki komið í eigu sveitarfélagsins.
-
8. Almenningssamgöngur - samantekt 2013
Mál 1402186 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sátu mannvirkjastjóri og umhverfisfulltrúi á framkvæmdasviði.
Fram lagt minnisblað um stöðu almenningssamgangna. Úr fyrra máli 1310045.
Máli vísað til áframhaldandi umræðu í bæjarráði og frekari vinnslu milli umræðna hjá umverfisfulltrúa.
-
9. Tímabundin skerðing á jafnorku til húshitunar
Mál 1402178 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað frá mannvirkjastjóra, dagsett 7. mars 2014, varðandi tímabundna skerðingu á jafnorku til húshitunar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkomið minnisblað og leggur til við bæjarráð að kannað verði með orkukaup frá öðrum aðilum vegna tíðra orkuskerðinga og mikis kostnaðarauka.
Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir því við eigna-, skipulag- og umhverfisnefnd að leita nýrra samninga um orkukaup sem verndi fjarvarmaveituna betur fyrir áföllum af þessu tagi.
Bæjarráð felur mannvirkjastjóra í samráði við fjármálastjóra að skoða önnur form á innkaupum orku til lækkunar á kostnaði.
-
10. Endurnýjun samnings við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð 2012
Mál 1211093 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að samningi við Björgvunarsveitirnar í Fjarðabyggð sem gerir ráð fyrir framlengingu á eldri samningi þar til gerður hefur verið nýr samstarfssamningur.
Bæjarráð samþykkir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
11. 755 Bólsvör 2 - umsókn um lóð
Mál 1403018 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarlóðarumsókn Skútuklappar ehf dagsett 3. mars 2014 þar sem sótt er um lóðina Bólsvör 2 á Stöðvarfirði til að byggja 2-400 m2 iðnaðarhúsnæði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Skútuklöpp ehf lóðinni.
-
12. Útboð - Safnahúsið í Neskaupstað
Mál 1403067 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Félags eldri borgara Norðfirði sem fjallar um útboð á rekstri safnahússins í Neskaupstað.
Í samningskaupalýsingu er gert ráð fyrir því að rekstraraðili hafi umsjón með yfirsetu á söfnum í húsinu en kanni möguleika á samstarfi við Félag eldri borgara í Neskaupstað vegna yfirsetu.
Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn Félags eldri borgara í Neskaupstað. Vísað til safnaráðs Neskaupstaðar til kynningar.
-
13. Tilnefning til aðalmanna og varamanna í fagráð Austurbrúar ses
Mál 1403025 Allur ferill málsins
Starfsháttanefnd Austurbrúar óskar eftir tilnefningu í fagráð Austurbrúar sem kosið er á ársfundi ár hvert. Óskað er tilnefningu eins karls og einnar konu.
Festað til næsta fundar.
-
14. Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2014
Mál 1402185 Allur ferill málsins
Fundarboð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga 27.3. 2014.
Bæjarráð felur Páli Björgvin Guðmundssyni bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
-
15. Leiga á snjóbíl
Mál 1403076 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að samning um snjóbíl til afnota fyrir almannavarnir Fjarðabyggðar vegna samgangna yfir Oddsskarð.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
16. Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2014
Mál 1403055 Allur ferill málsins
Fundargerð framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 6.mars lögð fram til kynningar.
Vísað til félagsmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar til kynningar.
-
17. Stjórnarfundir StarfA 2014
Mál 1403069 Allur ferill málsins
Fram lögð fundargerð stjórnar Starfa frá 28. febrúar s.l. til kynningar.
Vísað til félagsmálanefndar til kynningar.
-
18. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2014
Mál 1402024 Allur ferill málsins
Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 813 frá 28. febrúar.
-
19. Hafnarstjórn - 128
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. mars lögð fram til kynningar.
-
20. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 88
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 10. mars lögð fram til kynningar.
-
21. Fræðslu- og frístundanefnd - 50
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 12. mars lögð fram til kynningar.