Bæjarráð, fundur 378
21. mars 2014, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 153 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 24. mars staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2013
Mál 1403085 Allur ferill málsins
TRÚNAÐARMÁL
Fjármálastjóri ásamt endurskoðanda sveitarfélagsins fóru yfir vinnu við ársreikningsgerðina.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 yfirferð
Mál 1403103 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Tekin umræða um framkvæmdir og fjármögnun í áætlun ársins 2014.
-
3. Endurskoðun á samþykktum SSA frá aðalfundi 2013
Mál 1402041 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað stjórnsýslu- og þjónustusviðs um áhrif breytinga á samþykktum Sambands sveitarfélaga Austurlands.
Frekari umfjöllun um dagskrárliðinn frestað til næsta fundar.
-
4. Tilnefning til aðalmanna og varamanna í fagráð Austurbrúar ses
Mál 1403025 Allur ferill málsins
Starfsháttanefnd Austurbrúar óskar eftir tilnefningu í fagráð Austurbrúar sem kosið er á ársfundi ár hvert. Óskað er tilnefningu fulltrúa beggja kynja.
Bæjarráð tilnefnir 8 fulltrúa, 4 karla og 4 konur og felur bæjarritara að koma tilnefningum til Austurbrúar.
-
5. Uppfyllingar fyrir neðan Árdal, Eskifirði
Mál 1403111 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf frá Íbúasamtökunum á Eskifirði um uppfyllingu neðan Dalshverfis á Eskifirði.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi íbúasamtakanna. Vísað til framkvæmdasviðs og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til nánari skoðunar og viðræðna við samtökin um hugmyndirnar.
-
6. Tímabundin skerðing á jafnorku til húshitunar
Mál 1402178 Allur ferill málsins
Farið yfir skerðingar raforku og áhrif þeirra á sveitarfélagið.
-
7. Kaup á snjótroðara
Mál 1403112 Allur ferill málsins
Tekin umræða um búnaðarmál í skíðamiðstöðinni í Oddsskarði og kaup á nýjum snjótroðara.
Bæjarráð Fjarðabyggðar skilur vel mikilvægi skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði og nauðsyn þess að tækjakostur sé góður. Í því ljósi hefur bæjarráð ákveðið að vísa kaupum á nýjum troðara til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2015 með það að markmiði að nýr troðari verði kominn til starfa í skíðamiðstöðinni í janúar það ár.
Einnig vill bæjarráð fagna þeirri vinnu sem hafin er í framtíðarhópi Skíðasvæðisins og hvernig við byggjum svæðið upp til framtíðar með það að markmiði að búa til eitt metnaðarfyllsta skíðasvæði á landinu.
-
8. Stuðningur varðandi Boðsundkeppni Grunnskólana í sundi.
Mál 1403078 Allur ferill málsins
Fram lögð beiðni fram Sundsambandi Íslands um styrk til boðsundskeppni grunnskóla.
Vísað til fræðslustjóra.
-
9. Beiðni um stuðning við fjölmiðlaverkefni
Mál 1403095 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Austurfréttar ehf. þar sem fjallað er um mikilvægi svæðisbundinna fjölmiðla fyrir lýðræði og samfélög. Óskað er eftir styrk til verkefnisins "hvað er að frétta" en það gerir ráð fyrir málþingi og fræðsluerindum auk kynningarátaks sem stendur yfir í mars og apríl.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 25.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað 21-69-
-
10. Fundur með stjórnendum Alcoa Fjarðaáls
Mál 1211140 Allur ferill málsins
Fulltrúar Alcoa Fjarðaáls þau Magnús Þór Ásmundsson og Dagmar Ýr Stefánsdóttir sátu fundinn auk Guðmundar Bjarnasonar sem var í símasambandi og fóru yfir málefni fyrirtækisins.
-
11. Húsnæðismál Golfklúbbs Byggðarholts
Mál 1403104 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað um húsnæðismál Golfklúbbsins Byggðarholts.
Bæjarráð samþykkir að húsnæði Fjarðabyggðar að Byggðarholti á Eskifirði verði afsalað til klúbbsins. Til viðhaldsframkvæmda vegna húsnæðisins verði veitt á árinu 2014 1.250.000 kr. sem tekið er af liðnum óráðstafað 21-69-. Dagskrárliðnum jafnframt vísað til fjárhagsáætlunar 2015.
Bæjarstjóra falið að ganga frá afsali og undirrita samninga og gögn vegna þessa.