Kaup á snjótroðara
Mál 1403112 Fyrst á dagskrá 21. mars 2014, síðast 10. apríl 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 378 liður 7
Tekin umræða um búnaðarmál í skíðamiðstöðinni í Oddsskarði og kaup á nýjum snjótroðara.
Bæjarráð Fjarðabyggðar skilur vel mikilvægi skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði og nauðsyn þess að tækjakostur sé góður. Í því ljósi hefur bæjarráð ákveðið að vísa kaupum á nýjum troðara til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2015 með það að markmiði að nýr troðari verði kominn til starfa í skíðamiðstöðinni í janúar það ár.
Einnig vill bæjarráð fagna þeirri vinnu sem hafin er í framtíðarhópi Skíðasvæðisins og hvernig við byggjum svæðið upp til framtíðar með það að markmiði að búa til eitt metnaðarfyllsta skíðasvæði á landinu.
-
Bæjarstjórn, fundur 153 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 378“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.