Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Húsnæðismál Golfklúbbs Byggðarholts

Mál 1403104 Fyrst á dagskrá 21. mars 2014, síðast 26. maí 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 378 liður 11

    Fram lagt minnisblað um húsnæðismál Golfklúbbsins Byggðarholts.

    Bæjarráð samþykkir að húsnæði Fjarðabyggðar að Byggðarholti á Eskifirði verði afsalað til klúbbsins. Til viðhaldsframkvæmda vegna húsnæðisins verði veitt á árinu 2014 1.250.000 kr. sem tekið er af liðnum óráðstafað 21-69-. Dagskrárliðnum jafnframt vísað til fjárhagsáætlunar 2015.

    Bæjarstjóra falið að ganga frá afsali og undirrita samninga og gögn vegna þessa.

  2. Bæjarstjórn, fundur 153 liður 2.11

    Fundargerðin „Bæjarráð - 378“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2016

    Bæjarráð, fundur 474 liður 4

    Bæjarráð samþykkir að úthluta til Golfklúbbs Byggðarholts styrk að upphæð kr. 1.250.000 af liðnum óraðstafað, 21690 á árinu 2016, samhliða því að gengið verður frá afsali á húseignum að Byggðarholti til golfklúbbsins. Bæjarstjóra falið að ganga frá undirritun afsals húseigna.

  4. Bæjarstjórn, fundur 201 liður 1.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 474“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is