Viðbótarkostnaður fyrir sundlaugina á Norðfirði vegna olíukyndingar
Mál 1403045 Fyrst á dagskrá 17. mars 2014, síðast 20. mars 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurÍþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 377 liður 4
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Fram lagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa þar sem gerð er grein fyrir viðbótarkostnaði fyrir sundlaugina á Norðfirði vegna olíukyndingar vegna skerðingar á raforku en fjarvarmaveitan á Norðfirði er nú kynnt með olíu. Útlit er fyrir að þessi staða vari út mars og apríl. Heildarkostnaðaraukning fyrir sundlaugina gæti því numið 6 og ½ milljón á umræddu tímabili.
Fram lagt til kynningar.
Mannvirkjastjóra og fjármálastjóra falið að fylgjast með þróun útgjalda og leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun 2014 þegar fyrir liggur endanlegur kostnaður fjarvarmaveitunnar vegna skerðingarinnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 152 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 377“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.