Sala á íbúð á Nesbakka 3 740 - fastanúmer 216-9504
Mál 1403003 Fyrst á dagskrá 17. mars 2014, síðast 20. mars 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 377 liður 6
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt fram minnisblað frá eigna- og framkvæmdafulltrúa, dagsett 7. mars 2014, varðandi kauptilboð í Nesbakka 3 (íbúð 01-102) Norðfirði að upphæð 7,5 milljónir kr. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tilboðið og vísar afgreiðslunni til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að selja íbúðina, samþykkir kauptilboðið og felur bæjarstjóra að undirrita gögn tengd sölunni.
-
Bæjarstjórn, fundur 152 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 377“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.