Hugsanleg helgaropnun í Skíðamiðstöð Austurlands í Oddsskarði í maí/júní 2014
Mál 1403041 Fyrst á dagskrá 17. mars 2014, síðast 20. mars 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 377 liður 3
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Fram lagt minnisblað frá íþrótta- og tómstundafulltrúa. Lögð er til opnun og gert ráð fyrir að hafa lyftu 1 og topplyftu opna föstudag til sunnudags í 9 helgar. Viðbótarkostnaður er áætlaður 3,6 milljónir en viðbótartekjur um 1,8 milljónir. Ástæðan fyrir því að verið er að skoða helgaropnun er óvenjumikið snjómagn á skíðasvæðinu og erfiður vetur bæði hvað varðar veðurfar og bilanir í snjótroðara.
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að farið verði í þessa tilraun og óskar eftir því við bæjarráð að rammi skíðamiðstöðvar verði hækkaður sem nemur nettókostnaði af þessari viðbótarþjónustu. Í minnisblaðinu er áætlaður nettókostnaður við helgaropnun í maí og júní 2014, u.þ.b. 1.8 milljónir.
Bæjarráð samþykkir tillöguna. Veitt er af liðnum óráðstafað 21-69- 1,5 milljón kr. til verkefnisins.
-
Bæjarstjórn, fundur 152 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 377“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.