Rekstur safna og tjaldsvæða sumarið 2014
Mál 1401117 Fyrst á dagskrá 11. febrúar 2014, síðast 20. febrúar 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: Menning og söfn
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Hafnarstjórn, fundur 127 liður 1
Hugmynd um útfærslu á rekstri Safnahússins í Neskaupstað sumarið 2014. Vísað er til afnota-og umráðasamnings um Safnahúsið, Egilsbraut 2 í Neskaupstað gr. 12.2. Fyrir liggur beiðni Safnaráðs hússins um að útvíkka starfsemina í húsinu skv. meðfylgjandi drögum að Samningskaupalýsingu. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, formaður atvinnu-og menningarnefndar og fulltrúi í safnaráði gerði grein fyrir málinu. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að heimila safnaráði að bjóða reksturinn út m.v. fyrirliggjandi samningskaupalýsingu. Ástu var þökkuð koman og yfirgaf hún síðan fundinn.
-
Bæjarstjórn, fundur 150 liður 6.1
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 127“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.