Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Beiðni um viðræður um viðkomu Nörrænu í Fjarðabyggðarhafnir

Mál 1310223 Fyrst á dagskrá 5. nóvember 2013, síðast 10. apríl 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Hafnarstjórn, fundur 124 liður 8

    Beiðni um viðræður um viðkomu Nörrænu í Fjarðarbyggðarhafnir

    Erindi frá P/F Smyril Line dags. 30. október 2013 þar sem óskað er eftir viðræðum um viðkomu Nörrænu í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra og formanni hafnarstjórnar að eiga viðræður við fyrirtækið.

  2. Bæjarstjórn, fundur 144 liður 12.8

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 124“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Beiðni um viðræður um viðkomu Nörrænu í Fjarðarbyggðarhafnir

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2014

    Hafnarstjórn, fundur 129 liður 1

    Á fundi hafnarstjórnar 5. nóvember 2013 var fjallað um erindi frá P/F Smyril Line dags. 30. október 2013 þar sem óskað er eftir viðræðum um viðkomu Nörrænu í Fjarðabyggðarhöfnum. Samþykkt var að verða við þeirri ósk P/F Smyril Line og var framkvæmdastjóra Fjarðarbyggðarhafna, formanni hafnarstjórnar og bæjarstjóra falið að eiga viðræður við fyrirtækið. Í framhaldi af því hafa forsendur verið skoðaðar hvað hafnaraðstöðu og staðarval varðar. Farið yfir málið.

    Hafnarstjórn og bæjarráð samþykkir að viðræðum verði haldið áfram á grundvelli beiðnar P/F Smyril line og athugunar hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, með fyrirhugaða staðsetningu á Eskifirði fyrir augum. Bæjarráð og bæjarstjóri yfirgáfu fundinn.

  4. Bæjarstjórn, fundur 153 liður 8.1

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 129“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is