Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 123

8. október 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Björgvin Már Hansson, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 360 liður 32

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 123 lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 141 liður 14

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju

    Mál 1309027 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur að raflögnum fyrir höfnina á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkti að fá stærri heimtaug á hafnarsvæðið sem mæti framtíðarrafmagnsnotkun á höfninni.

  2. 2. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

    Mál 1210091 Allur ferill málsins

    Lög fram endanleg skýrsla unnin af Vegagerðinni en drög að skýrslunni voru kynnt á fundi hafnarstjórnar 8. ágúst sl. Skýrslan kynnt og verður tekin fyrir að nýju síðar.

  3. 3. Grjótgarður neðan við Strandgötu 86a og bryggja við Strandgötu 86b

    Mál 1309178 Allur ferill málsins

    Erindi dags. 30. september 2013 frá sjóminjasafni Austurlands þar sem óskað er eftir aðkomu hafnarsjóðs að því að grjótverja svæði neðan við Strandgötu 86a og 86b á Eskifirði en sjórinn er að brjóta niður steyptan kant neðan við húsin. Einnig er óskað eftir aðkomu hafnarsjóðs að endurbótum á trébryggju neðan við Strandgötu 86b. Hafnarstjórn samþykkir að fara í grjótvörn neðan við Strandgötu 86a og út að bryggju. Einnig samþykkt að láta meta og kanna kostnað við endurbætur á bryggjunni.

  4. 4. Öryggis- og brunavarnakerfi í húsakynni Sjóminjasafns Austurlands

    Mál 1310037 Allur ferill málsins

    Erindi frá Sjóminjasafni Austurlands dags. 3. október 2013 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 600.000 kr. frá hafnarsjóði til að setja upp öryggis- og brunavarnarkerfi í húseignir sjóminjasafnsins á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að verða við beiðninni enda gert ráð fyrir þessari upphæð í fjárhagsáætlun árins.

  5. 5. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2014

    Mál 1308088 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um fjárhagsáætlun 2014 ásamt gjaldskrá og þriggja ára áætlun. Hafnarstjórn samþykkti áætlunina og jafnframt að hækka gjaldskrá hafnarsjóðs um 3,1%. Áætuninni og gjaldskrá er vísað til bæjarráðs.