Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 363

4. nóvember 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 143 liður 1

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 4. nóvember staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1307059 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.

    Framhaldið umræðu um fjárhagsáætlun 2014.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra og bæjarstjóra að vinna áfram að fjárhagsáætlun 2014 og meta hagræðingarleiðir í samráði við bæjarráð.

  2. 2. Drög að starfsleyfi fyrir Gámaþjónustu Austurlands vegna starfseminnar að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.

    Mál 1306116 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Ásmundar Ásmundssonar vegna starfsleyfis Gámaþjónustu Austurlands að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði. Umræða um málið. Umsókn um stækkun starfsleyfis er í vinnslu hjá Heilbrigðiseftirliti Austurlands og var tekið fyrir á fundi eigna-, skipulag- og umhverfisnefndar 12. september s.l. þar sem nefndin taldi rétt að starfsleyfið yrði auglýst.

  3. 3. Fjármál sveitarfélaga, Fjárhagsleg viðmið og upplýsingar um fjármál sveitarfélaga

    Mál 1310198 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlagt til kynningar bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjármál sveitarfélaga almennt.

  4. 4. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013

    Mál 1301338 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 809 frá 25. október 2013

  5. 5. Heimsókn innanríkisráðherra í október 2013

    Mál 1310230 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf innanríkisráðherra þar sem hún þakkar móttökur sem hún fékk á heimsókn sinni til Austurlands.

  6. 6. Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-2014

    Mál 1203050 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Estherar Aspar Gunnarsdóttur þar sem hún óskar eftir leyfi frá störfum sem bæjarfulltrúi og nefndarmaður í atvinnu- og menningarnefnd vegna fæðingarorlofs frá 4. nóvember 2013 til 1. apríl 2014.

    Stefán Már Guðmundsson tekur sæti hennar sem aðalmaður í bæjarstjórn og Ásbjörn Þorsteinsson sem aðalmaður í atvinnu- og menningarnefnd.