Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Drög að fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga árið 2014

Mál 1310232 Fyrst á dagskrá 18. nóvember 2013, síðast 21. nóvember 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 365 liður 2

    Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga verður haldinn 21.nóvember kl. 14:00 í Gistihúsinu á Egilsstöðum. Sigrún Júlía Geirsdóttir verður fulltrúi Fjarðabyggðar á aðalfundinum. Framlögð drög að fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga árið 2014 gera ráð fyrir hækkun á framlagi Fjarðabyggðar um 350.000 kr. eða um 8,2 % Atvinnu- og menningarnefnd vísaði hækkun á framlagi til Héraðsskjalasafns til afgreiðslu í bæjarráði þar sem umbeðin hækkun er töluvert umfram almenna hækkun á fjárhagsrömmum ársins. Bæjarráð samþykkir að hækka framlag til safnsins og vísar málinu til fjárhagsáætlunar 2014.

  2. Bæjarstjórn, fundur 144 liður 8.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 365“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is