740 Strandgata 14 - Beiðni um breytingar á húsi
Mál 1309047 Fyrst á dagskrá 16. september 2013, síðast 21. nóvember 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 355 liður 1
Beiðni Trölla ehf. um að breyta húsinu að Strandgötu 14 í Neskaupstað í gistirými. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 140 liður 5.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 355“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 6
Beiðni Trölla ehf. um að breyta húsinu að Strandgötu 14 í Neskaupstað í gistirými. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd ákvað að grenndarkynna umsóknina. Athugasemdir undirritaðar af sjö af átta umsagnaraðilum bárust. Þær athugasemdir sem bárust í grenndarkynningu gáfu ekki tilefni til að hafna beiðni um breytta starfsemi í húsinu. Nefndin samþykkti breytta starfsemi í húsinu enda eru fordæmi fyrir slíkri starfsemi í íbúðahverfum annars staðar í sveitarfélaginu.
Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Jens Garðar Helgason.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum breytta starfsemi í húsinu að Strandgötu 14 í Neskaupstað.