Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 140

26. september 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson, varamaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. 740 - Deiliskipulag vinnubúða og athafnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði

    Mál 1305011 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði. Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag vinnubúða og athafnasvæðis vegna Norðfjarðarganga, skipulagsuppdráttur með greinargerð dagsettri 16.júlí 2013. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.

    Samþykkt með 9 atkvæðum.

  2. 2. Lántaka vegna endurfjármögnunar rekstrarleigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.

    Mál 1308122 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti samhljóða með 9 atkvæðum að taka lán hjá Íslandsbanka að fjárhæð 200.000.000 kr., í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem lágu fyrir fundinum. Er lánið tekið til að endurfjármagna rekstrarleigusamninga Fjarðabyggðar við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.

    Jafnframt er Páli Björgvini Guðmundssyni kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð f.h. Fjarðabyggðar til þess að undirrita lánssamning við Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

  3. 3. Viðaukar við lánasamninga Íslandsbanka frá 2011

    Mál 1309134 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti samhljóða með 9 atkvæðum tvo viðauka við lánasamninga Fjarðabyggðar við Íslandsbanka frá 10.júní 2011 sem liggja fyrir fundinum.

  4. 4. Bæjarráð - 356

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Elvar Jónsson

    Fundargerð bæjarráðs frá 23. september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Félagsmálanefnd1309032
    2. 4.2 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Bæjarráð1309036
    3. 4.3 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/20141309097
    4. 4.4 Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi1309129
    5. 4.5 Þjóðahátíð Austfirðinga 20131309133
    6. 4.6 Boð á 1. fund Hringborðs Norðurslóða 12.-14. október í Reykjavík1309127
    7. 4.7 Fundarboð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands1309120
    8. 4.8 Fundargerðir stjórnar SSA - 20131301160
    9. 4.9 Aðalfundur SSA 20131306105
    10. 4.10 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20131301338
    11. 4.11 Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 20131309132
    12. 4.12 37. mál til umsagnar frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis1309128
    13. 4.13 Lántaka vegna endurfjármögnunar rekstrarleigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.1308122
    14. 4.14 Viðaukar við lánasamninga Íslandsbanka frá 20111309134
    15. 4.15 Hafnsækin starfsemi2009-02-13-215
    16. 4.16 Fyrirspurn um þróun fjárhagsramma málaflokka1309135
    17. 4.17 Kvikmyndatökur í Fjarðabyggð1309080
  5. 5. Bæjarráð - 355

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 16. september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 740 Strandgata 14 - Beiðni um breytingar á húsi1309047
    2. 5.2 Ágóðahlutagreiðsla 2013 - Brunabót1309059
    3. 5.3 Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 20131309069
    4. 5.4 Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 20131309062
    5. 5.5 Sjávarútvegsfundur 20131309068
    6. 5.6 Kynning á Nordregio og ráðstefnu1309040
    7. 5.7 Fundargerðir félagsmálanefndar 20131301074
    8. 5.8 Atvinnu- og menningarnefnd - 481309006F
    9. 5.9 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 721309007F
    10. 5.10 Fræðslu- og frístundanefnd - 431309005F
  6. 6. Bæjarráð - 354

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 9. september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Málefni leikskóla Fjarðabyggðar1308039
    2. 6.2 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Bæjarráð1309036
    3. 6.3 Aðalfundarboð - Sjóminjasafn Austurlands - fimmtudaginn 12. september 20131309037
    4. 6.4 Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 20131302044
    5. 6.5 Stjórnarfundir StarfA 20131302097
    6. 6.6 Tall Ships Race1309009
  7. 7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 72

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 72 frá 12.september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  8. 8. Atvinnu- og menningarnefnd - 48

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 48 frá 12.september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  9. 9. Fræðslu- og frístundanefnd - 43

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 43 frá 11.september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

  10. 10. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr.46 frá 10.september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.