Bæjarráð, fundur 356
23. september 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 140 liður 4
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Elvar Jónsson
Fundargerð bæjarráðs frá 23. september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Félagsmálanefnd
Mál 1309032 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri og formaður félagsmálanefndar sátu þennan lið fundarins. Félagsmálanefnd hefur fundað um helstu áherslur og undirbúning að starfsáætlun 2014. Stærstu mál á næsta ári, fyrir utan hefðbundinn rekstur málaflokksins, eru endurnýjun á ferðaþjónubíl fyrir fatlaða og eldri borgara, auk málefna Breiðabliks en um áramót færist þjónusta Breiðabliks yfir á Þjónustustig 1. Fjármálastjóra og mannvirkjastjóra falið að skoða kosti þess að kaupa nýjan ferðaþjónustubíl út frá þarfagreiningu félagsþjónustusviðs. Hækka þarf gjaldskrá á heimsendum mat úr 660 kr. í 780 kr. en gjaldskrá heimaþjónustu hækkar um 3%.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Bæjarráð
Mál 1309036 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræður um fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014.
-
3. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014
Mál 1309097 Allur ferill málsins
Umsóknarfrestur um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014 er til 30.september nk. Bæjarstjóra falið að ganga frá umsókn fyrir alla bæjarhluta Fjarðabyggðar.
-
4. Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi
Mál 1309129 Allur ferill málsins
Drög að bréfi bæjarstjóranna í Fjarðabyggð, á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði vegna uppbyggingar og sameiginlegrar markaðssetningar skíðasvæðanna á Austurlandi auk minnisblaðs markaðs- og upplýsingafulltrúa. Bæjarráð samþykkir að unnið verði áfram að málinu af krafti.
-
5. Þjóðahátíð Austfirðinga 2013
Mál 1309133 Allur ferill málsins
Þjóðahátíð verður haldin í Grunnskóla Reyðarfjarðar 17.nóvember nk. Samþykkt að styrkja hátíðina um 50.000 kr. og veita endurgjaldslaus afnot af húsnæði.
-
6. Boð á 1. fund Hringborðs Norðurslóða 12.-14. október í Reykjavík
Mál 1309127 Allur ferill málsins
Forseti Íslands, sem er einn af heiðursstofnaðilum Hringborðs Norðurslóða, hefur hvatt sveitarfélögin til þess að taka þátt í 1. fundi Hringborðsins, sem haldinn verður í Hörpu 12.-14. október nk.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á fundinn. Ákvörðun um fulltrúa tekin á næsta fundi.
-
7. Fundarboð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Mál 1309120 Allur ferill málsins
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn í Vinaminni Borgarfirði eystri, miðvikudaginn 9.október kl. 14:00. Lagt er til að formaður eigna- skipulags- og umhverfisnefndar fari með umboð Fjarðabyggðar á fundinum og varaformaður nefndarinnar sæki einnig fundinn. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til kynningar.
-
8. Fundargerðir stjórnar SSA - 2013
Mál 1301160 Allur ferill málsins
Fundargerðir stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 12. og 14.september 2013.
-
9. Aðalfundur SSA 2013
Mál 1306105 Allur ferill málsins
Fundargerð aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2013 lögð fram til kynningar.
-
10. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013
Mál 1301338 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13.september lögð fram til kynningar.
-
11. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2013
Mál 1309132 Allur ferill málsins
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn á Hilton Nordica 2.október kl. 16:00. Bæjarstjóri mun sitja fundinn fyrir hönd bæjarins.
-
12. 37. mál til umsagnar frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis
Mál 1309128 Allur ferill málsins
Þingsályktun um leikskóla að afloknu fæðingarorlofi - beiðni um umsögn. Lagt fram til kynningar og vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
13. Lántaka vegna endurfjármögnunar rekstrarleigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.
Mál 1308122 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Gögn eru lögð fram sem trúnaðarmál. Um er að ræða 200.000.000 kr. lántöku hjá Íslandsbanka vegna endurfjármögnunar á leigusamningum Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. Fjármálastjóri fór yfir skilmála lánsins. Bæjarráð samþykkir lántöku en vísar málinu til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
-
14. Viðaukar við lánasamninga Íslandsbanka frá 2011
Mál 1309134 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
-
15. Hafnsækin starfsemi
Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað bæjarstjóra merkt trúnaðarmál. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja undirbúning og leiða viðræður, við landeigendur í Reyðarfirði sem málið varðar, vegna kaupa á landi undir hafnsækna starfsemi.
-
16. Fyrirspurn um þróun fjárhagsramma málaflokka
Mál 1309135 Allur ferill málsins
Framlagt svar fjármálastjóra vegna fyrirspurnar Eydísar Ásbjörnsdóttur frá 26.ágúst sl.
-
17. Kvikmyndatökur í Fjarðabyggð
Mál 1309080 Allur ferill málsins
Fyrir liggur tölvupóstur frá Pegasus vegna notkunar á byggingum í eigu sveitarfélagsins í tengslum við kvikmyndatökur. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur mannvirkjastjóra og bæjarstjóra að fara yfir og meta óskir Pegasusar.