Bæjarráð, fundur 355
16. september 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 140 liður 5
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 16. september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. 740 Strandgata 14 - Beiðni um breytingar á húsi
Mál 1309047 Allur ferill málsins
Beiðni Trölla ehf. um að breyta húsinu að Strandgötu 14 í Neskaupstað í gistirými. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
2. Ágóðahlutagreiðsla 2013 - Brunabót
Mál 1309059 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands um ágóðahlutagreiðslu 2013. Hlutdeild Fjarðabyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 4,868% og greiðsla til Fjarðabyggðar nemur kr. 7.302.000. Lagt fram til kynningar.
-
3. Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2013
Mál 1309069 Allur ferill málsins
Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2013 verður haldinn í tengslum við fjármálaráðstefnu, föstudaginn 4.október kl. 13:00 í Reykjavík. Forseti bæjarstjórnar mun sækja fundinn.
-
4. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2013
Mál 1309062 Allur ferill málsins
Bæjarráð leggur til að öllum níu bæjarfulltrúum Fjarðabyggðar verði gefinn kostur á að sækja fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður 3. og 4.október.
-
5. Sjávarútvegsfundur 2013
Mál 1309068 Allur ferill málsins
Ráðstefnan Sjávarútvegur og byggðaaðgerðir verður haldin 2.október kl. 14:00 í Reykjavík. Lagt fram til kynningar.
-
6. Kynning á Nordregio og ráðstefnu
Mál 1309040 Allur ferill málsins
Nordregio, norræn stofnun um byggðamál, stendur fyrir ráðstefnu í Stokkhólmi 14. - 15.október nk. undir yfirskriftifnni "Attraktionskraft Norden". Lagt fram til kynningar.
-
7. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013
Mál 1301074 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 46 frá 10. september lögð fram til kynningar.
-
8. Atvinnu- og menningarnefnd - 48
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 12.september lögð fram til kynningar.
-
9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 72
Fundaragerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 12. september lögð fram til kynningar.
-
10. Fræðslu- og frístundanefnd - 43
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 11. september lögð fram til kynningar.