Bæjarráð, fundur 354
9. september 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 140 liður 6
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson og Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 9. september 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Málefni leikskóla Fjarðabyggðar
Mál 1308039 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri. Málefni leikskóla í Fjarðabyggð tekin til umræðu.
Bæjarráð samþykkir að efsta deild leikskólans Dalborgar verði færð í Grunnskólann á Eskifirði með sama hætti og gert verður á Reyðarfirði um áramót. Fræðslustjóra falið að útfæra tilfærsluna í samráði við skólastjóra grunnskóla og leikskóla á Eskifirði.
Auknum kostnaði vegna ársins 2014 vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2014.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Bæjarráð
Mál 1309036 Allur ferill málsins
Framlagður rammi fyrir sameiginlegan kostnað til úrvinnslu. Vísast til afgreiðslu bæjarstjóra, fjármálastjóra og bæjarritara.
-
3. Aðalfundarboð - Sjóminjasafn Austurlands - fimmtudaginn 12. september 2013
Mál 1309037 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð aðalfundar Sjóminjasafns Austurlands sem haldinn verður fimmtudaginn 12. september.
Bæjarráð felur Jens Garðar Helagsyni að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
4. Nýir íbúar og brottfluttir í Fjarðabyggð 2013
Mál 1302044 Allur ferill málsins
Framlagðar tölur yfir íbúa í Fjarðabyggð fyrstu níu mánuði ársins en um er að ræða fjölgun.
Vísað til kynningar í atvinnu- og menningarnefnd.
-
5. Stjórnarfundir StarfA 2013
Mál 1302097 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Starfa frá 23. ágúst sl.
-
6. Tall Ships Race
Mál 1309009 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Esbjerg þar sem fulltrúum Fjarðabyggðar er boðið að taka þátt í vinabæjarsamkomu í tengslum við "Tall ships race"
Bæjarráð samþykkir að þekkjast boðið og felur bæjarritara að staðfesta þátttöku.