Gjaldskrár í fræðslu-og frístundastofnunum
Mál 1310094 Fyrst á dagskrá 14. október 2013, síðast 21. nóvember 2013. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárSkólar og fræðsla
Í hnotskurn
Málið fjallar um gjaldskrár tónlistarskóla, leikskóla, grunnskóla, skólamáltíða, skóladagheimila, sundlauga, íþróttahúsa og skíðamiðstöðvar í Fjarðabyggð, sem fræðslu- og frístundanefnd vísaði til bæjarráðs ásamt minnisblaði fræðslustjóra1. Bæjarráð samþykkti gjaldskrárnar með breytingum og bæjarstjórn staðfesti síðustu afgreiðsluna 21. nóvember 201356.
Staðan
Gjaldskrárnar eru samþykktar með þeim breytingum sem bæjarráð gerði 18. nóvember 2013 og bæjarstjórn afgreiddi fundargerðina 21. nóvember 201356.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 360 liður 8
Lagðar voru fram tillögur um meðal annars 3% hækkun leikskólagjalda, 5% hækkun gjalda í heilsdagsskóla, 10% hækkun tónskólagjalda, óbreytta gjaldskrá skólamötuneyta og 50% afslátt fyrir öryrkja, en bæjarráð frestaði afgreiðslu.
Endursögn gervigreindar
Gjaldskrám í fræðslu-og frístundastofnunum vísað frá fræðslu- og frístundanefnd, til staðfestingar bæjarráðs, ásamt minnisblaði fræðslustjóra.
Gjaldskrár í fræðslu- og frístundamálum teknar til umfjöllunar og afgreiðslu. Um er að ræða gjaldskrár tónlistarskóla, leikskóla, grunnskóla, skólamáltíða, skóladagheimila, sundlauga, íþróttahúsa og skíðamiðstöðvar.
Lagt er til að leikskólagjöld hækki um 3%, gjöld í heilsdagsskóla hækki um 5%, tónskólagjöld hækki um 10%. Gjaldskrá skólamötuneyta grunnskóla verði óbreytt.
Gjaldskrá frístundastofnana hækki um 4,1 til 12,5% með þeim undantekningum að gjöld vegna barna til 18 ára hækki ekki. Gjaldskrá íþróttahúsa hækki ekki. Bætt verði inn gjaldskrá vegna öryrkja með 50% afslætti. Vegna Curron handhafakorta verði bætt inn 500 kr. skilagjaldi. Einstakir gjaldskrárliðir hækka mismunandi mikið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu gjaldskráa.
-
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 4.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 360“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 361 liður 12
Bæjarráð samþykkti gjaldskrárnar frá 1. janúar 2014 með þeim breytingum að gjaldskrá skóladagheimila hækki um 8% í stað 5% og gjaldskrá tónskóla um 14% í stað 10%, og vísaði þeim til fjárhagsáætlunargerðar.
Endursögn gervigreindar
Frá 360. fundi bæjarráðs.
Gjaldskrám í fræðslu-og frístundastofnunum vísað frá fræðslu- og frístundanefnd, til staðfestingar bæjarráðs, ásamt minnisblaði fræðslustjóra.
Gjaldskrár í fræðslu- og frístundamálum teknar til umfjöllunar og afgreiðslu. Um er að ræða gjaldskrár tónlistarskóla, leikskóla, grunnskóla, skólamáltíða, skóladagheimila, sundlauga, íþróttahúsa og skíðamiðstöðvar.
Lesa alla bókunina (100 orð til viðbótar)
Lagt er til að leikskólagjöld hækki um 3%, gjöld í heilsdagsskóla hækki um 5%, tónskólagjöld hækki um 10%. Gjaldskrá skólamötuneyta grunnskóla verði óbreytt.
Gjaldskrá frístundastofnana hækki um 4,1 til 12,5% með þeim undantekningum að gjöld vegna barna til 18 ára hækki ekki. Gjaldskrá íþróttahúsa hækki ekki. Bætt verði inn gjaldskrá vegna öryrkja með 50% afslætti. Vegna Curron handhafakorta verði bætt inn 500 kr. skilagjaldi. Einstakir gjaldskrárliðir hækka mismunandi mikið. Gjaldskrár hækki frá 1.1.2014
Bæjarráð samþykkir gjaldskrár með þeim breytingum að gjaldskrá skóladagheimila hækki um 8% í stað 5%. Gjaldskrá tónskóla hækki um 14% í stað 10%.
Gjaldskrám vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 142 liður 1.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 361“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 365 liður 7
Bæjarráð samþykkti að bæta við 10 miða korti í líkamsrækt og sund og að eldri borgarar fái aðgangskort í sundlaugar að gjöf í stað ákvæðis um frítt sund fyrir 67 ára og eldri, og breytti jafnframt hækkun skóladagheimila í 3% og tónlistarskóla í 10%.
Endursögn gervigreindar
Fyrir liggur minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa þar sem kynntar eru tvær breytingar á gjaldskrám íþróttamiðstöðva. Annars vegar er bætt við 10 miða korti í líkamsrækt og sund og hins vegar að eldri borgarar í Fjarðabyggð fái aðgangskort í sundlaugar Fjarðabyggðar að gjöf og samhliða verði fellt úr gjaldskrá, að 67 ára og eldri fái frítt í sund. Fræðslu- og frístundanefnd hefur samþykkt breytingarnar. Bæjarráð samþykkir ofangreindar breytingar.
Þá samþykkir bæjarráð að breyta ákvörðunum um gjaldskrárhækkanir frá fundi 19.október þannig að gjaldskrá skóladagheimila hækki um 3 % í stað 8% og gjaldskrá tónlistarskóla hækki um 10% í stað 14%
-
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 8.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 365“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.