Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 142

31. október 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson, varamaður
  • Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 361

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL1305034
    2. 1.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20141307059
    3. 1.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd1212086
    4. 1.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Félagsmálanefnd1309032
    5. 1.5 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Fræðslu- og frístundanefnd1309034
    6. 1.6 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20141310053
    7. 1.7 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20141310047
    8. 1.8 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20141310055
    9. 1.9 Gjaldskrá rafveitu Fjarðabyggðar 20141310056
    10. 1.10 Gjaldskrá tjaldsvæða 20141310046
    11. 1.11 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20141310054
    12. 1.12 Gjaldskrár í fræðslu-og frístundastofnunum1310094
    13. 1.13 Ósk um aukið framlag til Sjóminjasafns Austurlands1310102
    14. 1.14 Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 61310116
    15. 1.15 Rekstur Egilsbúðar1012090
    16. 1.16 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/20141309097
    17. 1.17 Ósk um viðræður vegna eignarhluta Fjarðabyggðar í Sparisjóð Norðfjarðar - TRÚNAÐARMÁL1307033
    18. 1.18 Frumvarp til laga um lögfestingu Norðurlandasamnings um almannatryggingar1310138
    19. 1.19 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 771310014F
  2. 2. Bæjarráð - 362

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 28. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20141307059
    2. 2.2 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - 20171310194
    3. 2.3 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/20141309097
    4. 2.4 Upplýsingaöryggismál1305128
    5. 2.5 Áhættumat í rekstri upplýsingatæknikerfa1310149
    6. 2.6 Neyðaráætlun vegna reksturs upplýsingatæknikerfa1310148
    7. 2.7 Reglur um upplýsingatæknimál1310150
    8. 2.8 Boð um heimsókn til Vesteralen - Museum Nord og Vesteralen Cultural Council1306104
    9. 2.9 NORA - Experience exchange project1307034
    10. 2.10 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20131310153
    11. 2.11 Jólasjóðurinn í Fjarðabyggð 20131310086
    12. 2.12 Skuldabréf innheimta1304085
    13. 2.13 Umferðaröryggi skólabarna og annara gangandi vegfarenda í Fjarðabyggð.1310191
    14. 2.14 Frumvarp til laga um lögfestingu Norðurlandasamnings um almannatryggingar1310138
    15. 2.15 Frumvarp til laga um breytiningu á lögum um sjúkraskrár1310139
    16. 2.16 Ársfundur Starfsendurhæfing Austurlands 20131309143
    17. 2.17 Aðalfundur Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2013, 10.júní1305138
    18. 2.18 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 771310014F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 77

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. október staðfest með 9 atkvæðum.

  4. 4. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014

    Mál 1309097 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2013 til 2014 úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Sérreglur vegna byggðakvóta fiskveiðiársins 2013 til 2014 samþykktar með 9 atkvæðum.

  5. 5. Reglur um upplýsingatæknimál

    Mál 1310150 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.

    Fram eru lagðar 3 reglur til staðfestingar bæjarstjórnar.

    * Regla um notendaeftirlit í upplýsingatæknikerfum

    * Regla um innleiðingu vél- og hugbúnaðar

    * Regla um aðgangsstýringar og umhald upplýsingatæknikerfa.

    Enginn tók til máls.

    Reglurnar samþykktar með 9 atkvæðum.

  6. 6. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 6

    Mál 1310116 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar viðauka 6 til endanlegrar staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.

    Um er að ræða leiðréttingar á villum í fjárhagsáætluninni.

    a) Ranglega eru tekjufært Reiknað orlof í málaflokki 02-15 Heimilishjálp að upphæð kr. 983.632 og í málaflokki 02-52 Liðveisla v/fatlaðra að upphæð kr. 1.600.000. Samtals hækkar því niðurstaða málaflokks 02 um kr. 2.583.632. Jafnframt lækkar handbært fé aðalsjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar um sömu upphæð eða kr. 2.583.632

    b) Ranglega eru tekjufærðar sölutekjur vegna íbúðar hjá Eignasjóð í stað Félagslegra íbúða að upphæð kr. 7.000.000. Samtals lækkar því niðurstaða Eignasjóðs um kr. 7.000.000 en niðurstaða Félagslegra íbúða hækkar um sömu upphæð. Þessi breyting lækkar áætlað handbært fé Eingarsjóðs um sömu upphæð en hækkar áætlað handbært fé Félagslegra íbúða um sömu upphæð. Breytingin hefur engin áhrif á stöðu samstæðu Fjarðabyggðar.

    c) Ranglega er tekjufærður virðisaukaskattur af leigutekjum í Eignarhaldsfélaginu Hrauni ehf. að upphæð kr. 36.671.123. Samtals lækka því áætlaðar tekjur og rekstrarniðurstaða Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. um sömu fjárhæð. Þessi breyting lækkar handbært fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og samstæðu Fjarðabyggðar um sömu upphæð eða kr. 36.671.123.

    d) Ranglega er færða á fjárfestingaráætlun Eignasjóðs endurgreiðsla frá Eignarhaldsfélaginu Fasteign vegna sundlaugarinnar á Eskifirði og slökkviðstöðvarinnar á Hrauni samkvæmt sérstöku samkomulagi við félagið frá árinu 2012 um lagfæringar á þessum mannvirkjum að upphæð kr. 22.500.000. Rétt er að færa þessar endurgreiðslur á rekstur Eignasjóðs til viðhaldsverkefni. Samtals lækkar því fjárfestinaráætlun Eignasjóðs fyrir þessar tvær eignir um kr. 22.500.000 og rekstur eignanna hækkar um sömu upphæð. Þessi breyting hefur engin áhrif að öðru leyti á rekstur og efnahag Eignasjóðs eða samstæðu Fjarðabyggðar.

    Elvar Jónsson kvað sér hljóðs um fundarsköp bæjarstjórnar vegna truflana í útsendingu.

    Jón Björn svaraði fyrirspurn Elvars.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  7. 7. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1307059 Allur ferill málsins

    Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2014.

    Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætlun úr hlaði með greinargerð.

    Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Bókun frá Fjarðalista. Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja að vísa fjárhagsáætlun næsta árs og þriggja ára áætlun til annarar umræðu. Jafnframt gerum við þá athugasemd við þessar áætlanir að ekki skuli gert ráð fyrir flutningi Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Að öðru leyti vísum við til fyrri bókana um þetta mál, t.a.m. við afgreiðslu á fjárhagsáætlun fyrir árið 2013.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2014 til síðari umræðu í bæjarstjórn 21. nóvember n.k.

  8. 8. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - 2017

    Mál 1310194 Allur ferill málsins

    Fyrri umræða um þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2015 til 2017.

    Bæjarstjóri fylgdi fjárhagsáætluninni úr hlaði með greinargerð.

    Til máls tóku: Elvar Jónsson, Sævar Guðjónsson, Eiður Ragnarsson, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson,

    Bókun frá Fjarðalista. Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja að vísa fjárhagsáætlun næsta árs og þriggja ára áætlun til annarar umræðu. Jafnframt gerum við þá athugasemd við þessar áætlanir að ekki skuli gert ráð fyrir flutningi Nesgötu suður fyrir fyrirhugaða leikskólabyggingu á Norðfirði. Að öðru leyti vísum við til fyrri bókana um þetta mál, t.a.m. við afgreiðslu á fjárhagsáætlun fyrir árið 2013.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2015 til 2017 til síðari umræðu í bæjarstjórn 21. nóvember nk.

  9. 9. Sala á hlutabréfum í Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf

    Mál 1310205 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.

    Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf hefur ákveðið að nýta innlausnarrétt sinn á hlutafé í EFF í samræmi við leigusamning félagsins við Fjarðabyggð. Fjarðabyggð ber því að selja hlutabréf sín í félaginu, nafnverð hlutanna er 213.410 og er kaupverðið á nafnverði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að selja hlutabréf í Eignarhaldsfélaginu fateign ehf. og felur bæjarstjóra að ganga frá sölu þeirra.