Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Gjaldskrá tjaldsvæða 2014

Mál 1310046 Fyrst á dagskrá 14. október 2013, síðast 31. október 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 360 liður 21

    Frá fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 10.október.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu um að gjaldskrá tjaldsvæða verði áfram byggð upp á sama hátt og hingað til en gjöldin verði þannig: 1.500 kr/nótt fyrir stæði, rafmagn verði 750 kr/nótt. Jafnframt telur nefndin rétta að skoða þann möguleika að fela félagasamtökum umhirðu og innheimtu tjaldsvæða.

    Bæjarráð frestar afgreiðslu gjaldskrár.

  2. Bæjarstjórn, fundur 141 liður 4.21

    Fundargerðin „Bæjarráð - 360“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 361 liður 10

    Frá 360. fundir bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir tillögu mannvirkjastjóra að gjaldskrá tjaldsvæða Fjarðabyggðar með þeirri breytingu að fullorðnir greiði 1.000 kr og rafmagnsgjald verði 750 kr. pr. nótt. Gjaldskrá verði eftirfarandi frá 1.1.2014 og henni vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

    Fullorðnir 1.000 kr/nótt

    Börn 14 ára og yngri frítt

    Eldri borgarar og öryrkjar 650 kr/nótt

    Rafmagn 750 kr/nótt

    Gistináttaskattur á tjald / tjaldsvagn / fellihýsi / húsbíl / hjólhýsi er kr. 100 á sólarhring og er innfalinn í gjaldskrá.

    Virðisaukaskattur er innifalinn í rafmagnsgjaldi.

  4. Bæjarstjórn, fundur 142 liður 1.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 361“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is