Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2014

Mál 1310055 Fyrst á dagskrá 19. október 2013, síðast 31. október 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárUmhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 361 liður 8

    Frá 360. fundi bæjarráðs.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu mannvirkjastjóra um að gjaldskrá hitaveitu á Eskifirði hækki um 3% 1.1.2014 auk þess sem fjarvarmaveitur hækki frá sama tíma um 5,34% vegna aukins kostnaðar við orkukaup.

    Jafnframt samþykkir nefndin að sundlaugar Fjarðabyggðar á Eskifirði og Norðfirði njóti báðar 20% afsláttar af gjaldskrám árið 2014, sem er í takt við ákvörðun bæjarráðs frá 2011, sem var þá aðeins fyrir sundlaugina á Eskifirði. Jafnframt er gert ráð fyrir að afsláttur hækkaði um 5% ári, þar til að hann yrði 30% árið 2016. Ein gjaldskrá verði fyrir hitaveituna.

    Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar með þeirri breytingu að gjaldskrá fyrir hitaveitu á Eskifirði hækkar um 1,5% í stað 3 % og vísar henni til fjárhagsáætlunargerðar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 142 liður 1.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 361“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is