Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Umferðaröryggi við leik- og grunnskóla

Mál 1311091 Fyrst á dagskrá 5. desember 2013, síðast 4. desember 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundirSamgöngurSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarstjórn, fundur 145 liður 6

    Umferðaröryggi við leik- og grunnskóla og íþróttamannvirki

    Bæjarstjóri lagði fram tillögu um umferðaöryggismál.

    "Lagt er til að sveitarfélagið hafi forgöngu um aðgerðir sem miða að bættri umferðarmenningu í Fjarðabyggð, með áherslu á akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur í grennd við skóla, leikvelli og íþróttahús.

    Greinargerð

    Settur verði á fót samráðshópur sem í sitji bæjarstjóri og fræðslustjóri, fyrir hönd sveitarfélagsins, fulltrúi frá lögreglu og formenn foreldrafélaga grunnskólanna.

    Lesa alla bókunina (63 orð til viðbótar)

    Samráðshópnum er ætlað að stuðla að aukinni umræðu um umferðaröryggismál barna og ungmenna í bæjarkjörnum sveitarfélagsins, sem nýst getur m.a. við yfirstandandi endurskoðun á umferðarsamþykkt sveitarfélagsins. Hópurinn vinni einnig að aðgerðum sem miða að bættri umferðamenningu í samstarfi foreldra, lögreglu og fræðsluyfirvalda í Fjarðabyggð."

    Til máls tóku: Elvar Jónsson, Ásta Eggertsdóttir, Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson.

    Tillagan er samþykkt með 9 atkvæðum.

  2. 2014

    Bæjarráð, fundur 408 liður 28

    Lagt fram bréf Önnu Margrétar Sigurðardóttur formanns foreldrafélags Nesskóla, auk gagna er varða umferðarmál í Neskaupstað.

    Með breytingu á umferðarsamþykkt á árinu 2014 var umferðarhraði í þéttbýli almennt lækkaður í 40 km. á klst. og í 30 km. klst. á völdum götum þar sem gangandi umferð barna er mikil, sbr. Miðstræti og Sverristún í Neskaupstað. Þá hefur verið aukið fjármagn til umferðamerkinga og lýsingar á árinu 2015.

    Frekari umræðu um málið er vísað til eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. Bæjarstjórn, fundur 168 liður 9.28

    Fundargerðin „Bæjarráð - 408“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is