Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 168

4. desember 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Eiður Ragnarsson, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns

    Mál 1409039 Allur ferill málsins

    Nýjar viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til grunnskóla, vísað frá bæjarráði. Fræðslunefnd hefur samþykkt reglurnar, fyrir sitt leyti.

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðmiðunarreglum úr hlaði og gerði grein fyrir sameiginlegri bókun bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn samþykkir nýjar viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns með fyrirvara um að þær verði skoðaðar, sem og fræðslumál sveitarfélagsins í heild, í úttekt KPMG sem vinna er hafin við. Um úttektina verði fjallað innan viðeigandi nefnda og meðal íbúa Fjarðabyggðar. Úttektin í heild sinni verður tekin til umfjöllunar í bæjarstjórn í mars 2015 og þá tekin afstaða til viðmiðunarreglna um úthlutun kennslutímamagns."

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir viðmiðunarreglur um úthlutun tímamagns til grunnskóla með 9 atkvæðum.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Seinni umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 ásamt starfsáætlunum einstakra málaflokka.

    Bæjarstjóri fylgdi úr hlaði síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2015 og starfsáætlanir stofnana.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason og Einar Már Sigurðarson.

    Niðurstöður fjárhagsáætlunar 2015 fyrir Fjarðabyggð og stofnanir með áorðnum breytingum eru eftirfarandi:

    Tölur í þús.kr.

    Rekstrarniðurstaða Fjárfestingar Afborganir langtímalána

    og leiguskuldbindinga

    Samstæða A -hluta 26.308 287.500 428.023

    Samstæða B-hluta 324.553 375.000 185.162

    Samstæða A og B hluta 350.861 662.500 613.184

    Bókun Fjarðalistans:

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 með vísan í sameiginlega bókun við afgreiðslu á nýjum viðmiðunarreglum um úthlutun kennslutímamagns.

    Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og starfsáætlanir stofnana fyrir árið 2015 með 9 atkvæðum.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 2018

    Mál 1408015 Allur ferill málsins

    Seinni umræða um þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2016 - 2018.

    Bæjarstjóri fylgi umræðu úr hlaði.

    Til máls tóku Elvar Jónsson og Jens Garðar Helgason.

    Bókun Fjarðalistans:

    Bæjarfulltrúar Fjarðalistans samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árin 2016 - 2018 með vísan í sameiginlega bókun við afgreiðslu á nýjum viðmiðunarreglum um úthlutun kennslutímamagns.

    Þriggja ára fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árin 2016 til 2018 samþykkt með 9 atkvæðum.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - fasteignagjaldaálagning

    Mál 1410165 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir álagningarstofnum fasteignagjalda 2015 og afslætti af fasteignaskatti elli- og örorkulíferisþega.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2015 verði sem hér segir:

    Fasteignaskattur A verði 0,48 % 1 af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur B verði 1,32 % 2 af húsmati og lóðarhlutamati.

    Fasteignaskattur C verði 1,63 % 3 af húsmati og lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,53 % af lóðarhlutamati.

    Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 2,00% af lóðarhlutamati.

    Vatnsgjald verði 0,28 % af húsmati.

    Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.

    Sorphreinsunargjald verði 23.050 kr. á heimili.

    Sorpeyðingargjald verði 10.940 kr. á heimili.

    Fjöldi gjalddaga verði átta, mánaðarlega frá 1. febrúar.

    Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.

    Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 9 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:

    a) Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 53.541 á árinu 2015.

    b) Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2014 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2015 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:

    Einstaklingar: Brúttótekjur allt að kr. 2.713.597 - 100 % afsláttur

    Brúttótekjur yfir kr. 3.588.669 - 0 % afsláttur

    Hjón og samskattað sambýlisfólk: Brúttótekjur allt að kr. 4.121.608 - 100 % afsláttur

    Brúttótekjur yfir 4.926.043 - 0 % afsláttur

  5. 5. Bygging leikskóla á Neseyri

    Mál 1402081 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum verksamning við Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar hf. vegna byggingar nýs leikskóla í Neskaupstað, að því gefnu að verkábyrgð liggi fyrir við undirritun verksamnings.

  6. 6. 740 - Deiliskipulag miðbæjar Norðfjarðar

    Mál 1302169 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.

    Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar, skipulagsuppdráttur, greinagerð og skýringaruppdrættir, dags. 9. júlí 2014 br. 1. desember 2014, með þeim breytingum sem fram koma á uppdrætti og í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. október 2014 nema að nafni skipulagsins verði breytt í Deiliskipulag miðbæjar Neskaupstaðar. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga þegar gögn hafa verið lagfærð í samræmi við samþykkt.

    Til máls tóku Eiður Ragnarsson, Einar Már Sigurðarson og Jens Garðar Helgason.

    Deiliskipulagstillaga samþykkt með 9 atkvæðum.

  7. 7. Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar

    Mál 1411134 Allur ferill málsins

    Tillaga framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna vegna vinnu við breytingu aðal- og deiliskipulags fyrir Norðfjarðarhöfn.

    Forseti fylgdi tillögu úr hlaði. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að hefja vinnu við breytingu aðal- og deiliskipulags fyrir Norðfjarðarhöfn.

  8. 8. Bæjarráð - 407

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 407 og 408 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 407 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 8.1 Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum1410164
    2. 8.2 Verkefnahópur um málefni Stöðvarfjarðar - erindisbréf1411133
    3. 8.3 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál1407033
    4. 8.4 Flugsaga Austurlands - umsókn um styrk1411088
    5. 8.5 Málefni Upplýsingamiðstöðvar Austurlands1411035
    6. 8.6 Áskorun til sveitarstjórnar Fjarðabyggðar vegna verkfalls tónskólakennara1411122
    7. 8.7 Gjaldtaka Fasteignaskrár Íslands vegna fasteignamats1111072
    8. 8.8 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20141402090
  9. 9. Bæjarráð - 408

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 407 og 408 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O. Hermannsson og Elvar Jónsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 408 frá 1.desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 9.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar1409064
    2. 9.2 Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns1409039
    3. 9.3 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20151409138
    4. 9.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd1409061
    5. 9.5 Búnaður fyrir brettaiðkendur1411159
    6. 9.6 Öldungamót í blaki á Norðfirði 20151405039
    7. 9.7 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Félagsmálanefnd1409066
    8. 9.8 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - fasteignagjaldaálagning1410165
    9. 9.9 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015 - aðalmál1407033
    10. 9.10 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 - 20181408015
    11. 9.11 Almenningssamgöngur - samningar 20141304095
    12. 9.12 Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 20151410076
    13. 9.13 Bygging leikskóla á Neseyri1402081
    14. 9.14 Menningarstefna1306017
    15. 9.15 Glettur - styrkbeiðni1411164
    16. 9.16 Mat á leigusamningum við Reiti II1302116
    17. 9.17 Umsókn um aðstöðu fyrir strandblaksvöll á Reyðarfirði1411131
    18. 9.18 Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar1411134
    19. 9.19 Málefni Austurbrúar1409001
    20. 9.20 Birtingaráætlun Austurbrúar 20151411165
    21. 9.21 Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands1410049
    22. 9.22 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 20181411152
    23. 9.23 Atvinnuleysi í Fjarðabyggð 20141411155
    24. 9.24 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20141402024
    25. 9.25 Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 20141403055
    26. 9.26 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20141411002
    27. 9.27 Stjórnarfundir StarfA 20141403069
    28. 9.28 Umferðaröryggi við leik- og grunnskóla1311091
    29. 9.29 Templarinn - hlutverk hússins1410174
    30. 9.30 Fundargerðir félagsmálanefndar 20141401186
    31. 9.31 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1071411016F
    32. 9.32 Fræðslunefnd - 91411012F
    33. 9.33 Menningar- og safnanefnd - 71411018F
    34. 9.34 Íþrótta- og tómstundanefnd - 71411014F
    35. 9.35 Hafnarstjórn - 1411411015F
  10. 10. Fræðslunefnd - 9

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 9 frá 25.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 10.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Fræðslunefndar1409064
    2. 10.2 Starfsáætlun 2015 - fræðslumál1408014
    3. 10.3 Viðmiðunarreglur um úthlutun kennslutímamagns1409039
    4. 10.4 Styrking verklegrar kennslu í skólum Fjarðabyggðar1304104
    5. 10.5 Framlög vegna nýbúafræðslu 20151409014
    6. 10.6 Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 20151409013
    7. 10.7 Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 20141403055
  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 107

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Eiður Ragnarsson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 107 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

  12. 12. Hafnarstjórn - 141

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 141 frá 25.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 12.1 Fundargerðir CI á árinu 20141401230
    2. 12.2 Fyrirspurn um þátttöku í flutninga- og hafnahóp sjávarklasans og formlega inngöngu í Íslenska sjávarklasann1411110
    3. 12.3 Norðfjarðarflugvöllur - klæðning1410115
    4. 12.4 Seatrade Miami 16-19 mars 20151411079
    5. 12.5 Umsögn um 24.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.1407037
    6. 12.6 Aðalskipulagsbreyting Norðfjarðarhafnar1411134
    7. 12.7 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20151409138
    8. 12.8 Rif á Strandgötu 7, Reyðarfirði1303116
  13. 13. Menningar- og safnanefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 7 frá 27.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 13.1 Samningur um söguritun Fáskrúðsfjarðar
    2. 13.2 Málefni menningarmiðstöðva 2014
    3. 13.3 Menningarstefna
    4. 13.4 Styrkur til Kórs Fjarðabyggðar
    5. 13.5 Tillaga um varðveislu og endurbótum á gömlum fjárréttum og lofvarnabirgi á Reyðarfirði
    6. 13.6 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 2018
    7. 13.7 Framlag Fjarðabyggðar til Sjóminjasafns Austurlands
  14. 14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 7 frá 27.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 14.1 Öldungamót í blaki á Norðfirði 2015
    2. 14.2 Búnaður fyrir brettaiðkendur
    3. 14.3 Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi
    4. 14.4 Ungmennaráð 2014 - 2015
    5. 14.5 SamAust 2014 á Norðfirði
    6. 14.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundanefndar
    7. 14.7 Starfsáætlun 2015 - Íþrótta- og tómstundamál
  15. 15. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014

    Mál 1401186 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 62 frá 24.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

  16. 16. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014

    Mál 1402090 Allur ferill málsins

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 50 frá 18.nóvember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.