Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 169

18. desember 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Eiður Ragnarsson, aðalmaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, varamaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Kristín Gestsdóttir, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, varamaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 409

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs, nr. 409 og nr. 410, teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 409 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL1403072
    2. 1.2 Búfénaður í Mjóafirði - Trúnaðarmál1412055
    3. 1.3 Drög að samþykktum um gæludýrahald á starfssvæði Heilbrigðisnefndar Austurlandssvæðis1412001
    4. 1.4 Framlög til stjórnmálaflokka1404124
    5. 1.5 Girðing á athafnasvæð Samskipa við Hafnargötu 6, Reyðarfirði.1412009
    6. 1.6 Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda1410073
    7. 1.7 Gjaldskrá ferðaþjónustu fatlaðs fólks 20151410029
    8. 1.8 Hvatning til sveitarfélaga að gera átak í að hækka1412054
    9. 1.9 Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila1110040
    10. 1.10 Umsókn um styrk vegna Eldvarnarátakssins 20141412022
    11. 1.11 211.mál til umsagnar frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna),1412053
    12. 1.12 366. mál til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði o.fl.)1412047
    13. 1.13 Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 20141411071
  2. 2. Bæjarráð - 410

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs, nr. 409 og nr. 410, teknar til afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 410 frá 15. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Mat á leigusamningum við Reiti II1302116
    2. 2.2 750 Ljósaland - byggingarbréf1411157
    3. 2.3 Beðni um styrk til bæjarráðs1412070
    4. 2.4 Beiðni um framlengingu á staðsetningu starfsmannabúða að Haga 20141410022
    5. 2.5 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20151409138
    6. 2.6 Hreindýraarður 20141412058
    7. 2.7 Hvatning til sveitarfélaga að gera átak í að hækka menntunarstig starfsmanna leikskóla1412054
    8. 2.8 Leiðbeiningar um uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES1411143
    9. 2.9 Leyfi um aðstöðu í íþróttahúsi Reyðarfjarðar fyrir þorrablót 20151411166
    10. 2.10 366. mál til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (fasteignaskattur af atvinnuhúsnæði o.fl.)1412047
    11. 2.11 Orðsporið 20151412094
    12. 2.12 Jólasjóðurinn í Fjarðabyggð 20141412093
    13. 2.13 KFF - stúka1409085
    14. 2.14 Málefni Austurbrúar ses.1404114
    15. 2.15 Samgöngumál íþróttafólks1412086
    16. 2.16 Mótun stefnu er varðar útleigu íþróttahúsa í Fjarðabyggð undir stóra viðburði1412049
    17. 2.17 Fundargerðir félagsmálanefndar 20141401186
    18. 2.18 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1081412003F
    19. 2.19 Fræðslunefnd - 101412005F
    20. 2.20 Hafnarstjórn - 1421412004F
    21. 2.21 Íþrótta- og tómstundanefnd - 81412008F
  3. 3. Fræðslunefnd - 10

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 10 frá 9. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20141411002
    2. 3.2 Endurskoðun á samningi um Skólaskrifstofu Austurlands A-hluti1412062
    3. 3.3 Hvatning til sveitarfélaga að gera átak í að hækka1412054
    4. 3.4 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 20181411152
    5. 3.5 Ytra mat á leikskólum- umsókn fyrir 20151412002
    6. 3.6 Breytingar á aðalnámskrá grunnskóla og stuðningur við innleiðingu námskrár1411161
    7. 3.7 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 108

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Ragnar Sigurðsson, Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 108 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

  5. 5. Hafnarstjórn - 142

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 142 frá 9. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 20181411152
    2. 5.2 Afnot Fjarðabyggðarhafna af upplýsingum úr landstöðvum Vaktstöðvar siglinga.1411162
    3. 5.3 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20151409138
    4. 5.4 Fyrirspurn um þátttöku í flutninga- og hafnahóp sjávarklasans og formlega inngöngu í Íslenska sjávarklasann1411110
    5. 5.5 Húsnæðismál Hafnarsjóðs1412051
    6. 5.6 Norðfjörður - bílavog1412033
    7. 5.7 Norðfjörður - umhverfisfrágangur við smábátahöfn1412034
    8. 5.8 Útgáfa bókar um 17 frumkvöðla í útvarps/rafeindavirkjun1412005
  6. 6. Íþrótta- og tómstundanefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók: Krisín Gestsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 8 frá 11. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 2018
    2. 6.2 Heilsuefling eldriborgara í Fjarðabyggð
    3. 6.3 Mótun stefnu er varðar útleigu íþróttahúsa í Fjarðabyggð undir stóra viðburði
    4. 6.4 Útleiga á húsnæði félagsmiðstöðva í Fjarðabyggð
    5. 6.5 Samgöngumál íþróttafólks
    6. 6.6 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2014
  7. 7. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014

    Mál 1401186 Allur ferill málsins

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 63 frá 8. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

  8. 8. 740 deiliskipulag Naust 1 - óveruleg breyting v. Vinheimanaust 7

    Mál 1411129 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulaginu Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni, skipulagsuppdráttur með greinargerð dagsettur 4. desember 2014.

    Grenndarkynningu er lokið með samþykki allra nágranna.

    Málsmeðferð verði í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.

  9. 9. Ársfundur Austurbrúar ses. 2014

    Mál 1404114 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.

    Til máls tók Einar Már Sigurðarson,

    Bæjarráð samþykkti, fyrir sitt leyti, eftirfarandi að því gefnu að heildarfjármögnun verkefnis við endurskipulagningu reksturs Austurbrúar liggi fyrir með framlagi allra sveitarfélaga og annarra stofnaðila ásamt fjármagni ríkis og stofnana þess og að fjárhagsáætlun ársins 2015 haldi.

    a) að fjármagn úr Atvinnuþróunarsjóði Austurlands, sem nú er til ráðstöfunar, verði nýtt til fjárhagslegrar endurskipulagningar Austurbrúar ca, 11.000.000 kr.

    b) að á árunum 2016, 2017 og 2018 verði framlag Fjarðabyggðar til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands tvöfaldað frá því sem það er á árinu 2014 og það renni til fjárhagslegrar endurskipulagningar.

    Bæjarstjórn staðfestir samþykkt bæjarráðs með 8 atkvæðum en Jón Björn Hákonarson situr hjá vegna stjórnarformennsku í Austurbrú.

  10. 10. Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 9 - Tónskóli Nesk

    Mál 1412035 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauki nr. 9 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2014 úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Í viðauka er lagt til að gerð verði breyting á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2014 þannig að viðhaldskostnaður húsnæðis tónlistarskólans í Nesskóla í Neskaupstað í málaflokki 37 Eignarhaldsfélaginu Hrauni ehf. hækki um kr. 9.000.000 og verði samtals kr. 19.904.500 í árslok 2014.

    Enn fremur er lagt til að fjármagna viðhaldsframkvæmdina af eigin fé Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. og inneign félagsins á viðskiptareikningi mun lækka sem því nemur við aðalsjóð. Handbært fé aðalsjóðs lækkar um sömu upphæð og verða áætlað kr. 274.276.000 í árslok 2014.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  11. 11. Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 10 - Reitir

    Mál 1412110 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka nr. 10, við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 úr hlaði.

    Í viðauka er gert ráð fyrir kaupum Fjarðabyggðar á eign Reita II ehf. að Heiðarvegi 14a Reyðarfirði - líkamsræktarstöð sem hefur verið leigð af fyrirtækinu.

    Við kaup Fjarðabyggðar á ofangreindri eign breytist eignahlið Eignasjóðs ekki, þar sem eignin er þegar færð meðal eigna sjóðsins. Skuldamegin munu skuldir, vegna kaupa eignanna, færast af liðnum leiguskuldir undir langtímaskuldum og lækkar hann sem því nemur eða um 61 milljón króna. Liðurinn langtímaskuldir við lánastofnanir, í efnahagsreikningi, hækkar þá á móti sem nemur fyrirhuguðum lántökum vegna kaupanna þegar endanleg lántaka liggur fyrir.

    Því er lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Eignasjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2014:

    a)

    Leiguskuldir í efnahagsreikningi lækki um kr. 61.000.000 á árinu 201 og afborganir leiguskulda ársins í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    b)

    Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi hækki um kr. 61.000.000 á árinu 2014 og tekin ný langtímalán í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    c)

    Fjármagnsgjöld í rekstrarreikningi hækki um kr. 1.000.000.

    Enn fremur er lagt til að fjármagna aukin rekstrargjöld kr. 1.000.000 af eigin fé eignasjóðs og skuld sjóðsins á viðskiptareikningi mun hækka sem því nemur við aðalsjóð. Handbært fé aðalsjóðs lækkar um sömu upphæð og verða áætlað kr. 273.276.000 í árslok 2014.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun 2014 með 9 atkvæðum.

  12. 12. Mat á leigusamningum við Reiti II

    Mál 1302116 Allur ferill málsins

    Fram lögð tillaga um fjármögnun vegna kaupa á líkamsræktarstöð á Reyðarfirði.

    Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu vegna dagskrárliðar.

    "Með vísan til minnisblaðs fjármálastjóra frá 16.12. 2014 um fjármögnun kaupa Heiðavegar 14a af Reitum II ehf. samþykkir bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi:

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 61.000.000 kr., í samræmi við skilmála sjóðsins um óverðtryggt lán til allt að 15 ára af eigin fé sjóðsins, lánið er óverðtryggt og ber 6 mánaða REIBOR millibankavexti auk 0,5% álags. Fjarðabyggð er heimilt að greiða lánið upp að hluta eða að öllu leyti á vaxtagjalddögum án kostnaðar fyrir lántaka, afborganir verða tvisvar á ári. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna endurkaup sveitarfélagsins á Heiðarvegi 14a af Reitum II ehf., sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Gunnari Jónssyni kt. 291065-5059 bæjarritara og staðgengli bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

    Tillaga samþykkt af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.