Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 142

9. desember 2014, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Eiður Ragnarsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 410 liður 20

    Framlögð til kynningar fundargerð hafnarstjórnar nr. 142 frá 9. desember

  • Bæjarstjórn, fundur 169 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 142 frá 9. desember 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014 - 2018

    Mál 1411152 Allur ferill málsins

    Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014 - 2018 lögð fram til kynningar.

  2. 2. Afnot Fjarðabyggðarhafna af upplýsingum úr landstöðvum Vaktstöðvar siglinga.

    Mál 1411162 Allur ferill málsins

    Erindi frá Neyðarlínunni ohf. dags. 25. nóvember 2014, þar sem Fjarðabyggðarhöfnum er boðið að gera samning um afnot af upplýsingum úr landstöðvum Vaktstöðvar siglinga.

    Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningi um rétt til afnot af kerfinu.

  3. 3. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

    Mál 1409138 Allur ferill málsins

    Afgreiðsla gjaldskrár Fjarðabyggðarhafna fyrir 2015 vegna breytinga er varða stöðuleyfi fyrir gáma á geymslusvæðum og gjaldtöku vegna úrgangs frá skipum í framhaldi af lögum þar að lútandi frá síðastliðnu vori. Drög að gjaldskrá samþykkt. Vísað til staðfestingar bæjarráðs.

  4. 4. Fyrirspurn um þátttöku í flutninga- og hafnahóp sjávarklasans og formlega inngöngu í Íslenska sjávarklasann

    Mál 1411110 Allur ferill málsins

    Athugun á áhuga á að gerast aðili að flutninga og hafnahóp sjávarklasans og formlegri inngöngu í Íslenska sjávarklasann. Málinu frestað á fundi hafnarstjónar 25. nóv 2014.

    Farið var yfir málið að nýju. Hafnarstjórn sammála um að gerast ekki aðili að klasanum að svo komnu máli.

  5. 5. Húsnæðismál Hafnarsjóðs

    Mál 1412051 Allur ferill málsins

    Umræða um húsnæðismál hafnarinnar. Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

  6. 6. Norðfjörður - bílavog

    Mál 1412033 Allur ferill málsins

    Pallur bílavogar á Norðfirði er orðinn mjög tærður og taka þarf ákvörðun um kaup á nýrri eða endrunýja pallinn á þeirri sem nú er til staðar. Fyrir fundinum lá minnisblað framkvæmdastjóra vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkir að kaupa nýja bílvog.

  7. 7. Norðfjörður - umhverfisfrágangur við smábátahöfn

    Mál 1412034 Allur ferill málsins

    Umræða um yfirborðsfrágang við smábátahöfnina á Norðfirði. Fyrir fundinum lá vinnuskjal framkvæmdastjóra í tengslum við málið.

    Hafnarstjórn fór yfir vinnuskjal framkvæmdastjóra og fól honum að vinna málið áfram samkvæmt vinnuskjalinu.

  8. 8. Útgáfa bókar um 17 frumkvöðla í útvarps/rafeindavirkjun

    Mál 1412005 Allur ferill málsins

    Erindi frá Jóhannesi Helgasyni og Páli V. Sigurðssyni þar sem óskað er eftir styrk til útgáfu bókar um frumherja í útvarps/rafeindavirkjun. Hafnarstjórn hafnar erindinu.