Hafnarstjórn, fundur 143
13. janúar 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, formaður
- Eiður Ragnarsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Guðrún M.Ó.Steinunnardóttir, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 413 liður 16
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 143 frá 13.janúar 2015, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 171 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 13. janúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2014
Mál 1401229 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar hafnasambands Íslands nr. 370 dags. 11. desember 2014 lögð fram til kynningar.
-
2. Fundargerðir CI á árinu 2014
Mál 1401230 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 4. desember 2014 lögð fram til kynningar.
-
3. Aðalfundur Cruise Europe 28. til 30. apríl 2015.
Mál 1412087 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruise Europa þar sem tilkynnt er um aðalfund CE 28. til 30. apríl 2015.
Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á aðalfundinn.
-
4. 730 Hraun 6 - umsókn um lóð
Mál 1412124 Allur ferill málsins
Erindi frá Gámaþjónustu Austurlands - Sjónarás ehf. þar sem sótt er um lóð nr. 6 að Hrauni við Mjóeyrarhöfn. Fyrir liggur umsögn Alcoa vegna úthlutun á lóð að Hrauni skv. samningi við fyrirtækið. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdi fyrir sitt leiti við að Gámaþjónustu Austurlands - Sjónarás ehf verði úthlutað lóðin Hraun 6 og vísar málinu til bæjarráðs.
-
5. 735 Eskifjörður - Beiðni um úrbætur á grjótgarði við fiskimjölsverksmiðju Eskju
Mál 1501058 Allur ferill málsins
Erindi frá Eskju hf. dags. 7. janúar 2015 þar sem óskað er eftir að skoðað verði með úrbætur á grjótgarði framan við fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.
Formaður og framkvæmdastjóri hafa hitt fulltrúa Eskju og skoðað aðstæður. Framkvæmdastjóra falið að skoða mögulega úrlausn.
-
6. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa
Mál 1005131 Allur ferill málsins
Umfjöllun um markaðs og kynningarmál vegna skemmtiferðaskipaverkefnis. Hafnarstjórn var kynnt vinnuskjal sem lá fyrir fundinum og samþykkti hafnarstjórn að vinna áfram í takt við það.
-
7. Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað
Mál 1311101 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála vegna lóðamála og undirbúnings í tengslum við framtíðarþróun Norðfjarðarhafnar.
-
8. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu
Mál 1501061 Allur ferill málsins
Erindi frá Thor Shipping ehf dags. 8. janúar 2015 þar sem óskað er eftir undanþágu fyrir Jurij Pavlicenko skipstjóra mv. Alexia að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Jurij Pavlicenko skipstjóra mv. Alexia.
-
9. Norðfjörður - Þekja á lenginu togarabryggju
Mál 1409204 Allur ferill málsins
Nú er verið að leggja lokahönd á útboðsgögn vegna þekju á nýja stálþil Togarabryggju á Norðfirði. Hér með er óskað heimildar til að setja þekjuna í úboðsferli. Hafnarstjórn samþykkir að setja þekjuna í útboð. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að setja þekjuna í útboð.