Hafnarstjórn, fundur 144
27. janúar 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eiður Ragnarsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 172 liður 4
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 144 frá 27. janúar 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
Mál 1501066 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 371 dags. 16. janúar 2015, ásamt skýrslu um niðurstöðu könnunar um sameiningu og samvinnu hafna.
Lagt fram til kynningar.
-
2. Lækur og vantnsstaða norðan Norðfjarðarflugvallar
Mál 1501224 Allur ferill málsins
Fyrir fundinum liggur greinargerð vegna vatnsstöðu norðan Norðfjarðarflugvallar sem óskað var eftir frá Mannviti og tillögu að úrbótum.
Hafnarstjórn leggur til að farið verði eftir tillögu þrjú samkvæmt skýrslu Mannvits frá því í janúar 2015. Framkvændastjóra falið að vinna málið áfram.
Hafnarstjórn vísar málinu til staðfestingar hjá bæjarráði.
-
3. Umsókn um stöðuleyfi - starfsmannaaðstaða Eimskips
Mál 1501221 Allur ferill málsins
Erindi frá Eimskipum dags. 16. janúar 2015 þar sem óskað er eftir leyfi til flutnings á starfsmannaaðstöðu á Mjóeyrarhöfn.
Hafnarstjórn samþykkir þetta fyrir sitt leiti og felur jafnframt framkvæmdastjóra að skoða möguleika á samnýtingu við vakthús.