Hafnarstjórn, fundur 145
10. febrúar 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eiður Ragnarsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 417 liður 16
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 145 frá 10. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 173 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 145 frá 10.febrúar 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015
Mál 1501066 Allur ferill málsins
Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem ársreikningur sambandsins fyrir árið 2014 er lagður fram til kynningar og athugsemda. Kynnt.
-
2. Fundargerðir CI á árinu 2015
Mál 1501065 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruies Iceland dags. 23. janúar 2015. Lögð fram til kynningar.
-
3. Athugasemdir úr úttekt Statoil á birgðastöðvum og hafnaraðstöðu
Mál 1501307 Allur ferill málsins
Bréf frá Olíudreifingu dags. 26. janúar 2015 þar sem greint frá niðurstöðum úttektar hjá fulltrúa Statoil á birgðastöðvum og hafnaraðstöðum á Norðfirði og Reyðarfirði. Framkvæmdastjóra falið að bregðast við athugasemdum sem fram koma í úttektinni.
-
4. Kynning á Bláfánaverkefni Landverndar
Mál 1410021 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála varðandi skoðun á að gera smábátahafnir í Fjarðabyggð að Bláfánahöfnum. Fyrir fundinum lá minnisblað frá verkefnastjóra atvinnumála.
Hafnarstjórn ákvað á grundvelli minnisblaðs að stefna ekki að umsókn um bláfána að svo stöddu.
-
5. Ljósmál - heimildarmynd um sögu vita á Íslandi
Mál 1501301 Allur ferill málsins
Erindi frá Dúa Landmark dags. 29. janúar 2015 þar sem óskað er eftir styrk frá Hafnarsjóð Fjarðabyggðar vegna gerðar heimildamyndar um vita á Íslandi.
Hafnarstjórn hafnar erindinu.
-
6. Lækur og vatnsstaða norðan Norðfjarðarflugvallar
Mál 1501224 Allur ferill málsins
Farið yfir mál varðandi læk við smábátahöfn og minnisblöð frá Mannviti og siglingasviði Vegagerðarinnar sem liggja fyrir um málið. Samþykki liggur fyrir um framkvæmdina.
Kynnt
-
7. Umsögn um skipulas- og matslýsingu Norðfjarðarhafnar
Mál 1501299 Allur ferill málsins
Erindi frá skipulags og byggingafulltrúa Fjarðabyggðar dags. 28. janúar 2015 þar sem óskað er umsagnar um skipulags og matslýsingu fyrir stækkun hafnarsvæðis á Norðfirði vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við skipulags- og matslýsinguna.
-
8. NAPLN - Experience exchange project
Mál 1307034 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Greater Stavanger um framhald á NAPLN verkefninu og umsókn um styrkveitingar til þess frá norska Innanríkisráðuneytinu. Stavanger hefur samþykkt að vera leiðandi aðili sem pólitískt forystuafl. Forsendur verkefnisins eru í grunninn þær sömu en hafa verið víkkaðar þannig að þær ná til fleiri atvinnugreina. Þátttaka í verkefninu var áður samþykkt á síðasta ári. Bæjarráð samþykkir áframhaldandi þátttöku, fyrir sitt leyti, og vísar því til endanlegrar afgreiðslu í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir að halda áfram þátttöku í verkefninu.