Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 417

16. febrúar 2015, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 173 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 416 og 417 teknar til afgreiðslu saman.

    Til mál tóku Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 417 frá 16.febrúar 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Atvinnumál á Stöðvarfirði

    Mál 1401116 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri í atvinnumálum sat þennan lið fundarins og fór yfir framgang verkefnisins.

  2. 2. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um gang verkefnisins Fjarðabyggð til framtíðar.

  3. 3. Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 2015

    Mál 1502058 Allur ferill málsins

    Minnisblað fræðslustjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa um styrkbeiðni til að mæta álögðum fasteignaskatti fyrir árið 2015 vegna ungmennafélaganna Leiknis og Austra, Golfklúbbs Norðfjarðar (golfskáli 1 og 2) og Hestamannafélagsins Blæs (Dalahöllin). Bæjarráð samþykkir að veita styrk.

  4. 4. Erindi frá Yrkjusjóði - ósk um stuðning - 2015

    Mál 1502055 Allur ferill málsins

    Beiðni um 150.000 kr. styrk vegna kaupa á trjáplöntum sem gróðursettar verða af grunnskólabörnum. Erindi vísað til skoðunar hjá fræðslustjóra.

  5. 5. Samningur við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð 2015

    Mál 1502088 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að að samningi við björgunarsveitirnar. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

  6. 6. Útleiga á stofnunum sveitarfélagsins - skólum, félagsheimilum, félagsmiðstöðvum og íþróttahúsum

    Mál 1502091 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um stefnu sveitarfélagsins í útleigu á aðstöðu í stofnunum sveitarfélagsins. Bæjarstjóri hefur verið með til skoðunar stefnu sveitarfélagsins í málinu. Frekari umræða um málið síðar.

  7. 7. 455.mál til umsagnar frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög),

    Mál 1502065 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar. Umsagnarfrestur um frumvarp til laga um náttúrupassa er til 20.febrúar nk. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  8. 8. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015

    Mál 1502053 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.janúar 2015, lögð fram til kynningar.

  9. 9. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun vegna 10.000 tonna viðbótarframleiðslu Laxa fiskeldis á laxi í Reyðarfirði. Skipulagsstofnun fellst á tillögu framkvæmdaraðila að matsáætlun með þeim viðbótum sem Laxar Fiskeldi setti fram og með athugasemdum Skipulagsstofnunar. Kærufrestur er til 17.mars 2015. Vísað til skoðunar og yfirferðar í hafnarstjórn og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  10. 10. Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1403072 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lagt fram sem trúnaðarmál, rekstrar- og framkvæmdayfirlit janúar - desember 2014 og tekju- og launakostnaðaryfirlit janúar - desember 2014.

  11. 11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015

    Mál 1501132 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 66 frá 9. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 111

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 111 frá 9. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.

  13. 13. Menningar- og safnanefnd - 9

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 9 frá 12. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 9

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 9 frá 12. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Fræðslunefnd - 12

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 12 frá 9. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.

  16. 16. Hafnarstjórn - 145

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 145 frá 10. febrúar 2015, lögð fram til kynningar.