Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 418

2. mars 2015, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 174 liður 1

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Dýrun Pála Skaftadóttir,

    Fundargerð bæjarráðs frá 2.mars 2015 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjármál 2014

    Mál 1501010 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Umræða um fjármál sveitarfélagsins, m.a. leigusamning um Molann og raforkukaup. Fjármálastjóra falið að vinna að hugmyndum að leiðum til betri nýtingar raforku í stofnunum Fjarðabyggðar. Bæjarstjóra falið að fara yfir efni samnings um húsnæði Molans við leigusala.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 1

    Mál 1502166 Allur ferill málsins

    Lagður fram viðauki 1, frá fjármálastjóra, við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna yfirtöku á rekstri gömlu Hulduhlíðar og villu í málaflokki fatlaðs fólks. Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um 24.096.591. Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

  3. 3. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Umræða um gang verkefnisins Fjarðabyggð til framtíðar. Fyrir liggur að vegna nokkurra samverkandi þátta mun verkefnið dragast fram eftir mars mánuði.

  4. 4. 740 Eyrargata 7

    Mál 1502115 Allur ferill málsins

    Bréf Kristins V. Jóhannssonar er varðar fyrirhugað rif á Eyrargötu 7 í Neskaupstað - gömlu vélsmiðjunni. Bæjarráð þakkar bréfritara erindi hans og felur bæjarstjóra að ræða við hann.

  5. 5. Auka aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 6.mars 2015

    Mál 1502120 Allur ferill málsins

    Auka aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands verður haldinn 6.mars 2015 kl. 14:00 á Fáskrúðsfirði. Bæjarstjóri verður fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.

  6. 6. Tillaga að matsáætlun fyrir 8000 tonna laxeldi í Mjóafirði

    Mál 1502123 Allur ferill málsins

    Fyrstu drög að matsáætlun fyrir 8.000 tonna laxeldi Norðanlax í Mjóafirði, lögð fram til kynningar.

  7. 7. Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar

    Mál 1404059 Allur ferill málsins

    Bæjarráð er sammála um að Marinó Stefánsson verði fulltrúi Fjarðabyggðar í stýrihóp sjálfbærniverkefnisins.

  8. 8. 455.mál til umsagnar frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög),

    Mál 1502065 Allur ferill málsins

    Umsögn Sambandsins um frumvarp til laga um náttúrupassa, lögð fram til kynningar.

  9. 9. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2015

    Mál 1502135 Allur ferill málsins

    Fundargerð Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 11.febrúar, lögð fram til kynningar.

  10. 10. Samgönguáætlun 2015-2026

    Mál 1502145 Allur ferill málsins

    Samantekt helstu áherslna frá Samgönguþingi, lagðar fram til kynningar. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  11. 11. Aðalfundur Samorku 20.febrúar 2015

    Mál 1501213 Allur ferill málsins

    Ályktun aðalfundar Samorku, frá 20.febrúar, lögð fram til kynningar. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  12. 12. Ósk um að forkaupsréttur á Mýrargötu 2 verði ekki nýttur

    Mál 1502133 Allur ferill málsins

    Borist hefur ósk um að Fjarðabyggð nýti ekki forkaupsrétt sinn að Mýrargötu 2 í Neskaupstað. Lagt er til að forkaupsrétturinn verði ekki nýttur þar sem breytingar á svæðinu eru ekki fyrirhugaðar í bráð. Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Bæjarráð er sammála nefndinni um að nýta ekki forkaupsréttinn að þessu sinni og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  13. 13. Erindi frá Yrkjusjóði - ósk um stuðning - 2015

    Mál 1502055 Allur ferill málsins

    Minnisblað fræðslustjóra um umsóknir grunnskólanna í Yrkjusjóðinn. Áætlaður kostnaður er kr. 90.000 til 120.000. Bæjarráð hafnar beiðni Yrkjusjóðsins um styrk, en beinir þeim tilmælum til grunnskólanna á hverjum stað, að þeir kanni með samstarf við skógræktarfélögin í Fjarðabyggð með samstarf í huga.

  14. 14. Beiðni um afnot af íþróttahúsi Norðfjarðar undir skemmtun - Hljóðkerfaleiga Austurlands

    Mál 1502172 Allur ferill málsins

    Minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um útleigu á íþróttahúsinu í Neskaupstað undir þrjár skemmtanir á vegum Hljóðkerfaleigu Austurlands. Bæjarráð samþykkir beiðnir um notkun hússins undir þessar þrjár skemmtanir, en ítrekar mikilvægi þess að gengið verði frá formlegu samþykki áður en viðburðir eru auglýstir opinberlega.

  15. 15. Norðfjörður - Þekja á lenginu togarabryggju

    Mál 1409204 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar þann 24. febrúar sl. var fjallað um tilboð sem bárust í þekju og lagnir togarabryggju á Norðfirði. Samþykkt var að ganga til samninga við lægstbjóðanda og liggja fyrir drög að samningi. Bæjarráð staðfestir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  16. 16. Greinagerð um tekjur áætlunarbíls milli Norðfjarðar og Egilsstaða - Trúnaðarmál

    Mál 1403143 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu mannvirkjastjóri og umhverfisfulltrúi. Lögð fram þrjú minnisblöð - merkt trúnaðarmál - er varða málið, ásamt drögum að svarbréfi til Austfjarðaleiðar og Tanna Travel. Bæjarstjóra falið að funda með forsvarsmönnum Austfjarðaleiðar og fara yfir málið. Vinnu við viðauka vegna málanna, vísað til fjármálastjóra.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 112

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 112, lögð fram til kynningar.

  18. 18. Hafnarstjórn - 146

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 146 lögð fram til kynningar.

  19. 19. Menningar- og safnanefnd - 10

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar nr. 10 lögð fram til kynningar.