Ósk um að forkaupsréttur á Mýrargötu 2 verði ekki nýttur
Mál 1502133 Fyrst á dagskrá 2. mars 2015, síðast 5. mars 2015. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 418 liður 12
Borist hefur ósk um að Fjarðabyggð nýti ekki forkaupsrétt sinn að Mýrargötu 2 í Neskaupstað. Lagt er til að forkaupsrétturinn verði ekki nýttur þar sem breytingar á svæðinu eru ekki fyrirhugaðar í bráð. Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Bæjarráð er sammála nefndinni um að nýta ekki forkaupsréttinn að þessu sinni og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 174 liður 11
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd, auk bæjarráðs, hafa samþykkt að nýta ekki forkaupsrétt að eigninni Mýrargötu 2 í Neskaupstað, að þessu sinni.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 174 liður 1.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 418“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.