Bæjarstjórn, fundur 174
5. mars 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Kristín Gestsdóttir, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 418
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Dýrun Pála Skaftadóttir,
Fundargerð bæjarráðs frá 2.mars 2015 samþykkt með 9 atkvæðum.
- 1.1 Fjármál 20141501010
- 1.2 Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 11502166
- 1.3 Fjarðabyggð til framtíðar1411075
- 1.4 740 Eyrargata 71502115
- 1.5 Auka aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 6.mars 20151502120
- 1.6 Tillaga að matsáætlun fyrir 8000 tonna laxeldi í Mjóafirði1502123
- 1.7 Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar1404059
- 1.8 455.mál til umsagnar frumvarp til laga um náttúrupassa (heildarlög),1502065
- 1.9 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20151502135
- 1.10 Samgönguáætlun 2015-20261502145
- 1.11 Aðalfundur Samorku 20.febrúar 20151501213
- 1.12 Ósk um að forkaupsréttur á Mýrargötu 2 verði ekki nýttur1502133
- 1.13 Erindi frá Yrkjusjóði - ósk um stuðning - 20151502055
- 1.14 Beiðni um afnot af íþróttahúsi Norðfjarðar undir skemmtun - Hljóðkerfaleiga Austurlands1502172
- 1.15 Norðfjörður - Þekja á lenginu togarabryggju1409204
- 1.16 Greinagerð um tekjur áætlunarbíls milli Norðfjarðar og Egilsstaða - Trúnaðarmál1403143
- 1.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 1121502016F
- 1.18 Hafnarstjórn - 1461502015F
- 1.19 Menningar- og safnanefnd - 101502014F
-
2. Samningur um Skólaskrifstofu Austurlands.
Mál 1502120 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.
Nýr samningur um Skólaskrifstofu Austurlands lagður fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Engin tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti með 9 atkvæðum og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 112
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson, Elvar Jónsson, Einar Már Sigurðarson, Dýrunn Pála Skaftadóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. febrúar 2015 að undanskildum lið 3 í fundargerð samþykkt með 9 atkvæðum.
-
4. Hafnarstjórn - 146
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 24.febrúar 2015 samþykkt með 9 atkvæðum.
- 4.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20151501066
- 4.2 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
- 4.3 Mjóafjarðarhöfn - hafnarkrani1502108
- 4.4 Norðfjörður - Þekja á lenginu togarabryggju1409204
- 4.5 740 Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027, breyting á þéttbýlisuppdrætti fyrir Norðfjörð vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn1411134
-
5. Menningar- og safnanefnd - 10
Til máls tók Dýrunn Pála Skaptadóttir.
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 26.febrúar 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 5.1 Menningarstyrkir menningar- og safnanefndar 2015
-
6. 730 - Deiliskipulag aksturs- og skotíþróttasvæða vestan Bjarga
Mál 1109100 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að tillaga að deiliskipulagi aksturs- og skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði verði auglýst.
Til máls tóku: Kristín Gestsdóttir, Eiður Ragnarsson, Valdimar O Hermannsson,
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu að deiliskipulagi aksturs- og skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði.
Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 9. janúar 2015. Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
-
7. 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda
Mál 1502042 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi matslýsingunni úr hlaði.
Lögð fram matslýsing vegna skipulagsáætlunar, dagsettri 20. febrúar 2015, unnin af Landmótun.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt matslýsinguna, fyrir sitt leyti, og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir matslýsingu vegna deiliskipulags Hlíðarenda með 9 atkvæðum.
-
8. 735 - Deiliskipulag miðbæjar Eskifjarðar
Mál 1502041 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi matslýsingunni úr hlaði.
Lögð fram matslýsing vegna skipulagsáætlunar, dagsettri 20. febrúar 2015, unnin af Landmótun.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt matslýsinguna, fyrir sitt leyti, og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir matslýsingu vegna deiliskipulags miðbæjar Eskifjarðar með 9 atkvæðum.
-
9. Breyting á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði
Mál 1403113 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulagstillögunni úr hlaði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði verði auglýst. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 26. janúar 2015.
Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna stækkunnar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti, greinargerð og umhverfisskýrslu dags. 26. janúar 2015. Tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
-
10. Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 1
Mál 1502166 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi viðaukanum úr hlaði.
Viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2015 lagður fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Lagt til að rekstrarkostnaður Eigansjóðs í deild 31-318 verði hækkaður um kr. 5.000.000 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að hann verði kr. 8.743.154 í heild á árinu vegna yfirtöku Eignasjóðs á húsnæði að Bleiksárhlíð 56 á Eskifirði. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé Eignasjóðs og munu skammtímaskuldir Eignasjóðs við aðalsjóð breytast sem því nemur.
Við yfirferð á fjárhagsáætlun ársins 2015 kom í ljós að vanáætlað er framlag Fjarðabyggðar til byggðasamlags um málefni fatlaðs fólks um kr. 19.096.591. Um er að ræða reiknivillu en ekki breyting á umfangi eða rekstri málaflokksins.
Lagt er til að framlag til byggðasamlags um málefni fatlaðs fólks á Austurlandi í málaflokki 02 Félagsþjónusta, deild 510 Sameiginlegir liðir fatlaðs fólks, verði verði hækkað um kr. 19.096.591 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 þannig að það verði kr. 48.000.000 í heildina á árinu. Enn fremur er lagt til að fjármagna þennan aukna rekstrarkostnað af eigin fé aðalsjóðs.
Handbært fé aðalsjóðs um lækka um kr. 24.096.591 til samræmis við ofangreint og verða kr. 420.387.000 í árslok 2015.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir viðauka nr. 1. við fjárhagsáætlun ársins 2015 með 9 atkvæðum.
-
11. Ósk um að forkaupsréttur á Mýrargötu 2 verði ekki nýttur
Mál 1502133 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd, auk bæjarráðs, hafa samþykkt að nýta ekki forkaupsrétt að eigninni Mýrargötu 2 í Neskaupstað, að þessu sinni.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun með 9 atkvæðum.